Febrúar 2012

febrúar 2012

(Sleppa dagatali)
M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M
1 2
fimmtudagur
3 4 5 6 7 8 9
fimmtudagur
10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23
fimmtudagur
24 25 26 27 28 29

Víkingur Heiðar Ólafsson

vikingur_stor

Víkingur Heiðar Ólafsson lauk námi til meistaragráðu frá Juilliard Listaháskólanum vorið 2008 þar sem hann lærði hjá Robert McDonald og Jerome Lowenthal. Hann byrjaði fjögurra ára að leika á píanó og hlaut fyrstu tilsögn frá móður sinni, Svönu Víkingsdóttur og síðar hjá Erlu Stefánsdóttur og Peter Máté. Hann hefur komið fram á fjölda tónleika frá unglingsaldri, m.a. Í Bandaríkjunum, Kína, Kanada, Lettlandi, Rúmeníu, Ítalíu, Belgíu, Spáni og Frakklandi auk þess að leika einleik m.a. með Sinfóníuhljómsveit Íslands, Juilliard Orchestra, New Juilliard Ensemble, Caput og Kammersveit Reykjavíkur.


Meðfram tónleikahaldi hefur Víkingur í auknum mæli haldið meistaranámskeið, kynnt sígilda tónlist fyrir nýjum áheyrendum, fengist við umritanir á íslenskum sönglögum fyrir píanó auk þess að sinna flutningi og pöntun á samtímatónlist. Meðal þeirra verka sem hann hefur frumflutt eru Píanókonsert Nr. 2 eftir Snorra Sigfús Birgisson, flokkarnir Inn og út um gluggann og Reykjavík by Night eftir Ólaf Óskar Axelsson og Processions, Píanókonsert Nr. 2 eftir Daníel Bjarnason. Auk þess hefur Haukur Tómasson samið fyrir hann Píanókonsert til flutnings veturinn 2009.


Víkingur hefur hlotið fjölmörg verðlaun og viðurkenningar fyrir leik sinn. Hann hefur unnið Íslensku Tónlistarverðlaunin sem besti flytjandi og bjartasta vonin, sigrað í konsertkeppni Juilliard skólans og hlotið Menningarverðlaun Ameríska-Skandinavíska félagsins auk Menningarverðlauna VISA. Víkingur er tilnefndur til Tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs 2009.


Víkingur hefur notið fjárhagslegs stuðnings úr Minningarsjóði um Birgi Einarson um árabil.



Bakhjarlar

Borgun VÍS Gamma


Þetta vefsvæði byggir á Eplica