Benjamin Shwartz
Þótt hann sé enn á þrítugsaldri hefur bandaríski hljómsveitarstjórinn Benjamin Shwartz þegar vakið athygli víða um lönd fyrir hæfileika sína. Hann ólst upp í Los Angeles og Ísrael, og lærði við Curtis-tónlistarháskólann í Fíladelfíu þar sem hann starfaði náið með Christoph Eschenbach.
Hann er líka tónskáld, lærði m.a. hjá Karlheinz Stockhausen í Þýskalandi og við IRCAM-stofnunina í París. Hann vakti verulega athygli þegar hann komst á verðlaunapall í Gustav Mahler-hljómsveitarstjórakeppninni árið 2007, og er nú aðstoðarstjórnandi við Sinfóníuhljómsveitina í San Francisco og stýrir einnig sinfóníuhljómsveit ungs fólks í sömu borg.



