Febrúar 2012

febrúar 2012

(Sleppa dagatali)
M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M
1 2
fimmtudagur
3 4 5 6 7 8 9
fimmtudagur
10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23
fimmtudagur
24 25 26 27 28 29

Hilary Hahn

hahn_stor

Hin 29 ára gamla Hilary Hahn þykir standa á hátindi frægðar sinnar um þessar mundir en í fyrra hlaut hún bæði Grammy-verðlaun og Gramophone-verðlaun sem einleikari ársins. Hún útskrifaðist úr Curtis-tónlistarháskólanum 16 ára gömul og hefur síðan ferðast um heiminn og haldið hátt í 2000 tónleika. Hún lék m.a. einleik á fiðlu í tónlist kvikmyndarinnar The Village eftir M. Knight Shyamalan, og nýr geisladiskur hennar með fiðlukonserti Sibeliusar fór beint í fyrsta sætið á klassíska Billboard-listanum fyrr á þessu ári.

 

Hahn hefur leikið með öllum helstu hljómsveitum heims og á síðasta ári lék hún m.a. í Bandaríkjunum, Kína, Kóreu, Þýskalandi, Bretlandi, Frakklandi, Belgíu, Ungverjalandi og Hollandi. Hún hefur nýverið frumflutt nýjan fiðlukonsert eftir Jennifer Higdon, og er á samningi hjá Deutsche Grammophon sem hafa gefið út fimm geisladiska með leik hennar á undanförnum sex árum.

 

Hilary Hahn fæddist í Virginíu-fylki í Bandaríkjunum og hóf að leika á fiðlu mánuði fyrir fjórða afmælisdaginn sinn. Hún lærði hjá frægum rússneskum kennara sem hafði áður kennt í St. Pétursborg, og þegar hún var 10 ára hóf hún nám við Curtis-tónlistarháskólann þar sem Jascha Brodsky var kennari hennar. Hún lauk skyldubundnu háskólanámi 16 ára gömul en ákvað að dvelja lengur í skólanum og taka fleiri valfög, m.a. í tungumálum, leiklist og skapandi skrifum. Hún kom fyrst fram í Carnegie Hall árið 1996, þá sextán ára gömul, og síðan hefur leiðin stöðugt legið upp á við fyrir þessa einstaklega hæfileikaríku ungu stúlku.

 

http://www.hilaryhahn.com/



Bakhjarlar

Borgun VÍS Gamma


Þetta vefsvæði byggir á Eplica