Hillevi Martinpelto
Sænska sópransöngkonan Hillevi Martinpelto debúteraði við Konunglegu óperuna í Stokkhólmi árið 1987 í Madame Butterfly, og fékk fljótlega hlutverk við Drottningholm-óperuna og Norrlands Operan í Umeå. Upp úr 1990 fór hún að syngja við helstu óperuhús heims, m.a. í Berlín, Glyndbourne og Vínarborg, og vakti heimsathygli þegar Sir John Eliot Gardiner tók hana upp á arma sína. Með honum söng hún m.a. greifynjuna í Brúðkaupi Fígarós, Leonóru í Fídelíó eftir Beethoven, og Elettra í Idomeneo eftir Mozart. Hún syngur einnig í Cosi fan tutte eftir Mozart á hljóðritun Sir Simon Rattle fyrir EMI.
Hillevi Martinpelto hefur komið fram með mörgum frábærum hljómsveitum og stjórnendum, m.a. Rattle, Carlo Maria Giulini, Colin Davis og Zubin Mehta. Hún söng við afhendingu Nóbelsverðlaunanna í Stokkhólmi í desember 1996. Á næstunni mun hún syngja Madame Butterfly í Berlín, Donnu Önnu í Don Giovanni í Berlín, og Níundu sinfóníu Beethovens með Simon Rattle í Berlín.



