Sarah Connolly
Breska mezzósópran-söngkonan Sarah Connolly nam píanóleik og söng við Royal College of Music í Lundúnum og hefur vakið mikla athygli á síðustu árum fyrir frábæran söng sinn. Hún hefur m.a. sungið Dídó í óperu Purcells við La Scala í Mílanó, Orfeus í óperu Glucks og titilhlutverkið í Lúkresía svívirt við Bæversku þjóðaróperuna í München, titilhlutverkið í Giulio Cesare við Glyndebourne-hátíðina og Annio í La clemenza di Tito við Metropolitan-óperuna í New York. Hún var tilnefnd til Olivier-verðlaunanna fyrir framúrskarandi sína í hlutverki Sestós í La clemenza di Tito við Ensku þjóðaróperuna.
Á síðustu mánuðum hefur hún m.a. sungið Dídó við Covent Garden, debúterað við Liceu-óperuna í Barcelona sem Nerone í Krýningu Poppeu, og sungið Brängane í Tristan og Ísold við Glyndebourne-óperuna. Hún mun á næstunni syngja tónskáldið í Ariadne á Naxos við Metropolitan-óperuna.
Sarah Connolly hefur sungið m.a. á Salzburgar-hátíðinni, Tanglewood, Proms-hátíð BBC, og hefur starfað með stjórnendum á borð við Sir Simon Rattle, Sir Colin Davis og Daniel Harding. Hún hefur tvívegis verið tilnefnd til Grammy-verðlauna fyrir hljóðritanir sínar og nýjasta útgáfan með söng hennar er Dídó og Eneas ásamt Hljómsveit upplýsingaraldarinnar.



