Febrúar 2012

febrúar 2012

(Sleppa dagatali)
M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M
1 2
fimmtudagur
3 4 5 6 7 8 9
fimmtudagur
10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23
fimmtudagur
24 25 26 27 28 29

Hamrahlíðarkórarnir

Kór Menntaskólans við Hamrahlíð var stofnaður haustið 1967 og hefur Þorgerður Ingólfsdóttir verið stjórnandi hans frá upphafi. Hamrahlíðarkórinn, sem er kór brautskráðra nemenda, hóf starfsemi sína árið 1982. Efnisskrá kóranna er afar fjölbreytt, spannar gamla tónlist og nýja, íslenska og erlenda, og hefur mikill fjöldi íslenskra kórverka verið saminn sérstaklega fyrir kórana og stjórnanda þeirra.

 

Kórarnir í Hamrahlíð hafa komið víða fram, bæði innanlands og utan, og hafa haldið tónleika á öllum Norðurlöndunum, sem og í Bretlandi, Þýskalandi, Austurríki, Sviss, Belgíu, Frakklandi, Spáni, Ungverjalandi, Eistlandi, Ísrael, Japan, Filippseyjum, Kína, Hollandi, Kanada og í Bandaríkjunum. Kórarnir hafa komið fram fyrir Íslands hönd á fjölmörgum kóramótum og Hamrahlíðarkórinn vann til fyrstu verðlauna í alþjóðlegu kórakeppninni „Let the Peoples Sing“ árið 1984. Árið 1993 var kórinn tilnefndur til Tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs.

 

Kórarnir hafa gert margar upptökur fyrir útvarp og sjónvarp, bæði á Íslandi og erlendis. Þrjár hljómplötur hafa komið út með söng kóranna og fimm hljómdiskar: Kveðið í bjargi, Turtildúfan, jarðarberið og úlfaldalestin, Íslensk þjóðlög, Íslenskir jólasöngvar og Maríukvæði, og Vorkvæði um Ísland. Síðastnefndi diskurinn var tilnefndur til Íslensku tónlistarverðlaunanna 2003 en það ár hlaut Hamrahlíðarkórinn verðlaunin í flokknum Flytjandi ársins. Hamrahlíðarkórarnir hafa margoft komið fram með Sinfóníuhljómsveit Íslands, í verkum eftir Beethoven, Bernstein, Debussy, Händel, Arvo Pärt, Ravel, Stravinskíj, og í verkum íslenskra tónskálda. Síðast sungu kórarnir með hljómsveitinni í nóvember 2007, í Sálmasinfóníu eftir Igor Stravinskíj.



Bakhjarlar

Borgun VÍS Gamma


Þetta vefsvæði byggir á Eplica