Elfa Rún Kristinsdóttir
Elfa Rún Kristinsdóttir er fædd á Akureyri árið 1985. Hún útskrifaðist af Diplómabraut tónlistardeildar Listaháskóla Íslands vorið 2003 undir handleiðslu Guðnýjar Guðmundsdóttur og Auðar Hafsteinsdóttur. Frá hausti 2003 stundaði Elfa Rún nám við Tónlistarháskólann í Freiburg undir handleiðslu prof. Rainer Kussmaul en hún lauk námi þaðan í febrúar 2007 með hæstu einkunn. Hún býr nú í Berlín.
Elfa Rún hefur leikið með ýmsum kammersveitum og -hópum síðastliðin ár. Hún er fastur meðlimur Kammersveitarinnar Ísafoldar og Solistenensemble Kaleidoskop í Berlín en hefur einnig leikið með Freiburger Bachorchester, Feldkirch Festivel Orchester og Camerata Stuttart auk fleirri kammerhópa í Þýskalandi. Elfa Rún hefur leikið einleik með ýmsum hljómsveitum og má þar helst nefna Sinfóníuhljómsveit Íslands, Sinfóníuhljómsveit Áhugamanna, Royal Chamber Orchestra Tokyo og Akademisches Orchester Freiburg.
Elfa Rún hlaut fyrstu verðlaun í Johann Sebastian Bach-keppninni í Leipzig 2006. Hún hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin sem „bjartasta vonin“ 2006 og var einnig tilnefnd til hvatningarverðlauna Evrópska menningarsjóðsins Pro Europa.



