September 2010

september 2010

(Sleppa dagatali)
M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10
föstudagur
11 12 13 14 15 16
fimmtudagur
17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30

Andrew Litton

litton_storBandaríski hljómsveitarstjórinn gat sér gott orð í tónlistarheiminum sem aðalstjórnandi Sinfóníuhljómsveitarinnar í Dallas, þar sem hann starfaði í tólf ár þar til 2006. Hann fór með hljómsveitina í tónleikaferðir til Evrópu, stjórnaði þeim í Carnegie Hall og á 28 geisladiskum sem fengu afbragðs dóma.

 

Síðan hann sagði starfi sínu lausu hefur hann verið búsettur í New York en ferðast víða um heiminn og gegnir stöðu aðalstjórnanda við Fílharmóníuhljómsveitina í Bergen. Þeirri sveit hefur hann m.a. stjórnað á Proms-hátíðinni, í Musikverein í Vínarborg og í Concertgebouw-salnum í Amsterdam. Litton var einn af þeim sem unnu harðast að því að koma upp óperustarfsemi í Bergen, Den Nye Oper, og er auk þess listrænn stjórnandi Sommerfest-hátíðarinnar í Minnesota.

 

Litton hefur stjórnað á yfir 80 geisladiskum, m.a. öllum píanókonsertum Rachmaninoffs ásamt Steven Hough, og hlaut Grammy-verðlaun fyrir upptöku sína á Veislu Belshazzar eftir Walton þar sem Bryn Terfel söng einsöng. Hann hefur hljóðritað allar sinfóníur Mendelssohns og balletta Stravinskíjs fyrir BIS-útgáfuna.

 

Litton hóf píanónám fimm ára gamall og ákvað þegar hann var tíu ára að hann vildi verða stjórnandi. Hann stundaði háskólanám við Juilliard í New York, varð yngsti keppandinn til að bera sigur úr býtum í BBC-hljómsveitarstjórakeppninni og varð í kjölfarið aðstoðarstjórnandi við La Scala í Mílanó.

 

 

http://www.andrewlitton.com/



Aðalstyrktaraðilar

Borgun VÍS Morgunblaðið

Þetta vefsvæði byggir á Eplica