Christine Brewer
Bandaríska sópransöngkonan Christine Brewer þykir hafa einstaka rödd, hlýja og skæra, kraftmikla og tjáningarríka. Hún hefur komið fram með öllum helstu stjórnendum og meðleikurum heims. Hún syngur á Schubert-útgáfu Hyperion með Graham Johnson og í Strauss-útgáfunni með Roger Vignoles, hefur hljóðritað Sálumessu Mozarts með Atlanta-sinfóníunni, Fidelio eftir Beethoven með Lundúnasinfóníunni og Sir Colin Davis, áttundu sinfóníu Mahlers með Sir Simon Rattle og Birmingham-sinfóníunni og Stríðssálumessu Brittens með Lundúnafílharmóníunni og Kurt Masur.
Hún hlaut Grammy-verðlaunin fyrir hljóðritun sína á sönglögum eftir bandaríska tónskáldið William Bolcom.
Undanfarið ár hefur Christine sungið einleikstónleika í Wigmore Hall, sungið í Die Frau ohne Schatten eftir Richard Strauss við Parísaróperuna, og áttundu sinfóníu Mahlers með Philadelphiu-hljómsveitinni undir stjórn Christophs Eschenbach. Auk þess hefur hún nýverið komið fram með Gewandhaus-hljómsveitinni í Leipzig undir stjórn Sir Charles Mackerras, og með Dresden Staatskapelle undir stjórn Yannick Nezet-Seguin.



