Kristin Sigmundsson
Óþarfi er að kynna Kristin Sigmundsson fyrir Íslendingum, en hann er einn af okkar fremstu söngvurum og nýtur virðingar fyrir list sína um allan heim. Hann lagði stund á líffræði við Háskóla Íslands og stundaði kennslu um árabil, en lærði einnig söng við Söngskólann í Reykjavík og í Vínarborg og Washington, D.C., hjá Helene Karusso, Christian Möller, Wolfgang Gabriel og John Bullock.
Kristinn hefur sungið í mörgum fremstu óperu- og tónleikahúsum heims, m.a. í Amsterdam, Barcelona, Berlín, Flórens, Genf, Hamborg, Köln, Mílanó, París og New York. Meðal þeirra stjórnenda sem hann hefur starfað með má nefna James Levine, Riccardo Muti, Bernard Haitink og Sir Colin Davis. Hann hefur gert fjölda hljóðritana, m.a. sungið Sarastro í Töfraflautunni og Commendatore í Don Giovanni með Arnold Östman, en síðarnefndi diskurinn hlaut frönsku Diapason d'or- verðlaunin og Schallplattenpreis í Þýskalandi. Þá hefur hann hljóðritað Schwanengesang og Winterreise með Jónasi Ingimundarsyni og passíur Bachs undir stjórn Frans Brüggen.
Kristinn hóf feril sinn sem lausráðinn óperusöngvari árið 1992 og syngur nú reglulega við Metropolitan-óperuna í New York, Covent Garden í Lundúnum, Parísaróperuna, Staatsoper í Vínarborg og Semperoper í Dresden.



