Justin Brown
Breski hljómsveitarstjórinn Justin Brown hefur verið aðalstjórnandi Sinfóníuhljómsveitarinnar í Alabama síðan 2006, og aðalstjórnandi við Badisches Staatstheater í Karlsruhe frá árinu 2008. Hann nam við háskólann í Cambridge og í Tanglewood hjá Seiji Osawa og Leonard Bernstein.
Brown hefur starfað mikið á Englandi og Norðurlöndum, og hefur m.a. stjórnað BBC- og Lundúnasinfóníunni, Fílharmóníunni í Ósló, sinfóníuhljómsveitunum í Bergen, Lahti, Stafangri og Þrándheimi. Hann stjórnaði Missa solemnis eftir Beethoven með Fílharmóníuhljómsveitinni í Dresden á hátíðartónleikum til að minnast þess að 55 ár voru liðin frá því að sprengjum rigndi yfir borgina. Fyrir skemmstu stjórnaði hann Pólsku útvarpshljómsveitinni á tónleikum í tilefni 75 ára afmælis Krzysztofs Penderecki.
Brown er afar virtur óperustjórnandi og hefur m.a. stjórnað við norsku óperuna í Ósló, við Ensku þjóðaróperuna, San Carlo í Lissabon og Þjóðaróperuna í Stuttgart. Hann hefur hljóðritað geisladiska m.a. með Sinfóníuhljómsveitinni í Birmingham, og nýleg hljóðritun hans á verkum bandaríska tónskáldsins Peter Lieberson var tilnefnd til Grammy-verðlauna.



