Rumon Gamba
Rumon Gamba nam við Konunglegu tónlistarakademíuna í London undir handleiðslu Colin Metters og varð fyrsti nemandinn í hljómsveitarstjórn sem vann til DipRAM-verðlaunanna. Skömmu síðar sigraði hann í keppni ungra hljómsveitarstjóra á vegum BBC og Lloyds-bankans og varð í framhaldi af því aðstoðarhljómsveitarstjóri Fílharmóníusveitar Breska ríkisútvarpsins um fjögurra ára skeið. Hann stýrði hljómsveitinni m.a. á opinberum tónleikum, við upptökur og á fjölda útvarps- og sjónvarpstónleika, og á Proms-tónleikum BBC.
Rumon hefur komið fram sem gestastjórnandi með flestum helstu hljómsveitum Bretlandseyja. Hann hefur auk þess starfað með fjölda þekktra hljómsveita á meginlandinu, m.a. Fílharmóníusveitinni í München, Útvarpshljómsveitinni í Berlín og Sinfóníuhljómsveitinni í Barcelona. Hann hefur einnig stjórnað Sinfóníuhljómsveitunum í Toronto, Sydney, Melbourne og Tókýó, sem og Fílharmóníuhljómsveitinni í New York. Hann þreytti frumraun sína við Ensku þjóðaróperuna vorið 2008 í óperettunni Candide eftir Leonard Bernstein. Hann tekur við stöðu aðalstjórnanda NorrlandsOperan sinfóníuhljómsveitarinnar í Svíþjóð í júlí 2009.
Rumon er samningsbundinn Chandos-útgáfunni og hefur hljóðritað fjölda hljómdiska með Fílharmóníusveit Breska ríkisútvarpsins. Má þar nefna upptökur á verkum eftir Arnold, Bax, Auric og Vaughan-Williams, svo og kvikmyndatónlist eftir Alwyn, Richard Rodney Bennett og Erich Wolfgang Korngold. Hljómdiskar hans og Sinfóníuhljómsveitar Íslands hafa hlotið afbragðs dóma víða um heim, og í desember 2008 var fyrsti diskurinn í fyrirhugaðri röð hljómsveitarverka eftir Vincent d'Indy tilnefndur til hinna virtu Grammy-verðlauna. Rumon hefur gegnt stöðu aðalhljómsveitarstjóra og listræns stjórnanda Sinfóníuhljómsveitar Íslands frá því í september 2002 en mun láta af því starfi í júní 2010.



