Hringadróttinssinfónían
Einn Hringur ræður þeim öllum, einn skal hann hina finna…
Hringadróttinssaga J.R.R. Tolkiens er önnur mest selda bók heims. Kvikmyndir Peters Jackson eru meðal þeirra metnaðarfyllstu sem gerðar hafa verið og slógu hvert aðsóknarmetið á fætur öðru við upphaf 21. aldarinnar. Tónskáldið Howard Shore tónsetti myndirnar þrjár og liggja eftir hann vel yfir 10 klukkustundir af tónlist fyrir þær. Hann vann til Óskarsverðlauna 2002 og 2004 fyrir framlag sitt til myndanna, auk Golden Globeverðlauna og fjölda annarra viðurkenninga.
Shore nálgast efnið á sinfónískan hátt og samdi m.a. fjölda stefja sem tengjast ákveðnum persónum, stöðum eða hlutum í sögunni. Í myndinni var tónlistin flutt af Fílharmóníuhljómsveit Lundúna, en undanfarin ár hefur tónleikaútgáfa verksins farið sigurför um heiminn og slegið aðsóknarmet hjá ýmsum hljómsveitum. Þetta verða stórglæsilegir tónleikar þar sem meðal annars koma fram einsöngvarar, fjórir kórar og fjöldi óvenjulegra hljóðfæra, auk þess sem myndefni sem tengist kvikmyndunum og sögu Tolkiens verður varpað á tjald í Eldborg.
-
Stjórnandi
Erik Ochsner
-
Einsöngvari
Nancy Allen Lundy
-
Kór
Hljómeyki, Kór Áskirkju, Söngsveitin Filharmónía, Stúlknakór Reykjavíkur
Magnús Ragnarsson, Margrét Pálmadóttir kórstjórar -
Efnisskrá
Howard Shore: Lord of the Rings Symphony



