Maxímús bjargar ballettinum
Maxímús og ballettdansararnir
Hallfríður Ólafsdóttir flautuleikari og Þórarinn Már Baldursson víóluleikari hafa skrifað þriðja ævintýrið um Maxímús Músíkús, enda nýtur litla músíkmúsin fádæma vinsælda meðal yngstu kynslóðarinnar.
Í nýja ævintýrinu um Maxa kynnist Maxímús Músíkús börnum sem hafa yndi af því að dansa við tónlist. Hann verður himinlifandi þegar tónlistarhúsið fyllist af ungum dönsurum því að honum finnst líka svo gaman að dilla sér í takt við tónlistina. Maxímús Músíkús dáist að færni ungu dansaranna og ákveður að kanna málið. Hann gerist laumufarþegi með einu barnanna og fylgist heillaður með dansæfingum nemendanna í listdansskólanum og því hvernig tónlistin er túlkuð í hreyfingum.
Börnin dansa við balletttónlist eins og Veturinn eftir Glazunov og Þyrnirósu Tsjajkofskíjs og túlka með hreyfingum ævintýri á borð við Tuma Þumal, Fríðu og dýrið, Kínversku prinsessuna og Ævintýragarðinn í Gæsamömmusvítu Ravels. Sýningunni lýkur með Eldi eftir Jórunni Viðar sem var eitt fyrsta íslenska tónverkið sem samið var fyrir listdans.
-
Stjórnandi
Bernharður Wilkinson
-
Einleikarar
Nemendur úr Listdansskóla Íslands
-
Sögumaður
Valur Freyr Einarsson
-
Efnisskrá
Alexander Glazunov: Veturinn
Pjotr Tsjajkovskíj: úr Þyrnirós
Maurice Ravel: Gæsamömmusvíta
Jórunn Viðar: Eldur



