Eftirlætis Mozart
Með klarínettusnillingnum Martin Fröst
Sænski klarínettusnillingurinn Martin Fröst er staðarlistamaður Sinfóníuhljómsveitar Íslands starfsárið 2009-10. Hann hefur fyrir löngu skipað sér í hóp fremstu tónlistarmanna Norðurlanda, hefur hlotið ótal verðlaun og komið fram í virtustu tónleikasölum heims.
Tónleikar hans á PROMS-tónlistarhátíðinni í fyrra þóttu einn af hápunktum tónleikaársins í Lundúnum og í fyrri heimsókn sinni til Íslands í vetur mun hann leika vinsælasta klarínettukonsert allra tíma, eitt síðasta verkið sem Mozart samdi áður en hann lést.
Auk þess verða á efnisskránni tvö önnur ódauðleg tónverk eftir meistara Amadeus, æsilegur forleikurinn að Brúðkaupi Fígarós og hin hádramatíska sinfónía nr. 40, sem hann samdi þegar hann var í hvað mestum fjárhags- og tilfinningakröggum sumarið 1789.
Stjórnandinn, Matthew Halls, er aðalstjórnandi King's Consort-tónlistarhópsins og hefur getið sér frábært orð fyrir túlkun sína á barokk- og klassískri tónlist.
-
Stjórnandi
Matthew Halls
-
Einleikari
Martin Fröst
-
Efnisskrá
W.A. Mozart: Brúðkaup Fígarós, forleikur
W.A. Mozart: Klarínettukonsert í A-dúr
W.A. Mozart: Sinfónía nr. 40 í g-moll, K. 550



