Sólskinssinfónían
Eivind Aadland hefur stjórnað Sinfóníuhljómsveit Íslands tvisvar sinnum áður og hlotið frábærar viðtökur í bæði skiptin. Hann lærði hjá meisturunum Yehudi Mehuhin og Jorma Panula og nýtur mikillar virðingar í starfi sínu sem aðalstjórnandi Sinfóníuhljómsveitarinnar í Þrándheimi.
Stefán Jón Bernharðsson leikur með Sinfóníuhljómsveit Íslands en var áður sóló-hornleikari við Óperuna í Malmö. Hann hefur unnið til fjölda verðlauna á alþjóðavettvangi fyrir frábæran leik sinn, m.a. fyrstu verðlaun í ConocoPhillips-keppninni í Ósló og önnur verðlaun í Lieksa-hornkeppninni í Finnlandi.
Johannes Brahms átti í erfiðleikum með að semja sína fyrstu sinfóníu. En þá var líka eins og stífla hefði brostið og önnur sinfónía hans er sú ljúfasta af þeim öllum, hrífandi og björt enda samin í sumarleyfi hans í austurrísku sveitaþorpi. Náinn vinur tónskáldsins lýsti áhrifum verksins svo: „Ekkert nema blár himinn, lækjarniður, sólskin og græn forsæla!“
Seinni hornkonsert Richards Strauss er sömuleiðis sólríkt verk, eitt af þeim síðustu sem meistarinn samdi fyrir lát sitt. Hann er feykierfiður og því sönn ánægja að heyra íslenskan einleikara í fremstu röð spreyta sig á slíku meistaraverki.
Haukur Tómasson hefur hlotið verðskuldaða viðurkenningu á undanförnum árum, meðal annars Tónlistarverðlaun Norðurlanda árið 2004 og kominn tími til að eitt af hans fyrstu hljómsveitarverkum heyrist á ný. Strati er hrífandi og kraftmikið verk sem hlaut Tónvakaverðlaun RÚV árið 1994.

Vinafélagið
Súpa og spjall
Munið Vinafélagskynninguna í Neskirkju fyrir tónleikana.
Súpa og spjall Árna Heimis Ingólfssonar um verkin á tónleikunum á Kaffitorginu í Neskirkju kl. 18.
-
Stjórnandi
Eivind Aadland
-
Einleikari
Stefán Jón Bernharðsson
-
Efnisskrá
Haukur Tómasson: Strati
Richard Strauss: Hornkonsert nr. 2
Johannes Brahms: Sinfónía nr. 2



