Jólatónleikar
Jólatónleikar Sinfóníuhljómsveitarinnar eru löngu orðinn fastur liður í jólaundirbúningnum. Að þessu sinni verður leikið fallega ævintýrið um snjókarlinn með tónlist eftir Howard Blake og Páll Óskar mun bæði segja söguna og syngja af sinni einstöku list.
Tveir ungir og efnilegir fiðluleikarar leika þátt úr hinum gullfallega konserti fyrir tvær fiðlur eftir Bach og síðan sér Graduale-kórinn um að koma öllum í rétt skap með jólalögum!
Miðaverð er 1.700 kr.
-
Stjórnandi
Bernharður Wilkinson
-
Einleikarar
Rannveig Marta Sarc
Sólveig Steinþórsdóttir -
Sögumaður
Páll Óskar Hjálmtýsson
-
Kór
Gradualekór Langholtskirkju undir stjórn Jóns Stefánssonar
-
Efnisskrá
Leroy Anderson: Jólaforleikur
Howard Blake: Snjókarlinn
J.S. Bach: Konsert fyrir tvær fiðlur
Vinsæl jólalög



