Maí 2012

maí 2012

(Sleppa dagatali)
Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F
1 2 3
fimmtudagur
4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25
föstudagur
26 27 28 29 30 31

Tónleikar
maxi_ljos
  • 17.4.2010 14:00
  • Háskólabíó
  • 1.700 KR.
  • 17.4.2010 17:00
  • Háskólabíó
  • 1.700 KR.
  • Kaupa miða

Maxímús Músíkús trítlar í tónlistarskólann

Í sögunni Maxímús Músíkús trítlar í tónlistarskólann kynnist Maxí börnum sem leika á alls kyns hljóðfæri.

Í hverju horni tónlistarskólans er verið að æfa og börnin eru öll afar spennt og kát því að þau eiga að fá að koma fram með stóru sinfóníuhljómsveitinni.

Fram koma ungir einleikarar og hópar barna sem leika með hljómsveitinni en inn á milli hljóma dillandi dansar þar sem hljómsveitin er í aðalhlutverki.

Það eru tveir hljóðfæraleikarar hjómsveitarinnar, þau Hallfríður Ólafsdóttir, flautuleikari og Þórarinn Már Baldursson, víóluleikari sem hafa skapað hann Maxa mús og ævintýri hans.

 Fyrsta bókin og diskurinn um Maxímús Músíkús var gríðarlega  vinsæl. Auk þess að hljóta  fjölda verðlauna  hefur bókin nú verið gefin út á mörgum tungumálum. Þess má einnig geta að  erlendar sinfóníuhjómsveitir hafa sett Maxa á dagskrá hjá sér.
Við erum viss um að nýja sagan um Maxímús og tónlistarskólann á ekki síður eftir að slá í gegn.

Sækja efnisskrá

Nýja bókin kemur út hjá Mái og Menningu í þessarri viku og verður til sölu á tónleikunum á sérstöku tilboðverði.

Viltu hlusta á lagið hans Maxa?

Hér getur þú prentað myndir af Maxa til að lita

 

  • Stjórnandi
    Daníel Bjarnason
  • Sögumaður
    Valur Freyr Einarsson
  • Efnisskrá
    Maxímús Músíkús trítlar í tónlistarskólann

Senda



Bakhjarlar

Borgun VÍS Gamma


Þetta vefsvæði byggir á Eplica