Heyrðu mig nú!
Þótt hið hefðbundna tónleikaform standi ávallt fyrir sínu er hollt og gott að breyta til og reyna aðrar leiðir til að gefa hlustendum innsýn í heim sígildrar tónlistar. Á tónleikum undir merkinu Heyrðu mig nú! er tónlistin kynnt á nýstárlegan og aðgengilegan hátt.
Tónleikarnir eru á föstudagskvöldum og hefjast kl. 21.00 og áður en verkið er flutt í heild er tónlistin kynnt með tóndæmum og léttu spjalli.
Tónleikarnir eru um klukkutími og ekki er gert hlé en að þeim loknum er slegið upp eftirpartýi í anddyri Háskólabíós þar sem gestir fá tækifæri til að spjalla við meðlimi sveitarinnar, stjórnanda og einleikara um tónlistina eða hvaðeina sem brennur á þeim.
Í vetur er það Eldfuglinn eftir Ígor Stravinskíj sem verður kynntur á Heyrðu mig nú! tónleikum 6. nóvember. Stravinskíj klæðir gamalt rússneskt ævintýri í magnaðan hljómsveitarbúning með miklum andstæðum, þar sem trylltir og ofsafengnir dansar hljóma í bland við ljúfsárar vögguvísur.
Miðaverði á þessa tónleika er haldið í algjöru lágmarki og er aðeins 1.500 kr.
-
Stjórnandi
Rumon Gamba
-
Efnisskrá
Ígor Stravinskíj: Eldfuglinn



