| M | F | F | L | S | M | Þ | M | F | F | L | S | M | Þ | M | F | F | L | S | M | Þ | M | F | F | L | S | M | Þ | M |
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1 | 2
fimmtudagur
|
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9
fimmtudagur
|
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16
fimmtudagur
|
17
föstudagur
|
18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23
fimmtudagur
|
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 |
Sinfóníuhljómsveit Íslands var stofnuð vorið 1950 og hefur um árabil verið í fremstu röð hljómsveita á Norðurlöndum. Hún hefur fengið afbragðs dóma jafnt fyrir hljóðritanir sínar sem tónleika heima og erlendis.
Hljómsveitarleikur á sér ekki langa sögu hér á landi. Fílharmóníuhljómsveit Hamborgar sótti Ísland heim sumarið 1926 undir stjórn Jóns Leifs og nokkru áður var stofnuð Hljómsveit Reykjavíkur sem lék af og til í höfuðstaðnum.
Það var svo fimmtudagskvöldið 9. mars 1950 sem íslenskir hljóðfæraleikarar léku saman undir merkjum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í fyrsta sinn, á sviði Austurbæjarbíós undir stjórn Róberts A. Ottóssonar.
Vladimir Ashkenazy er óumdeilanlega frægastur íslenskra ríkisborgara í klassíska tónlistarheiminum.
Lesa meira
Fyrir utan Litla tónsprotann sem ætlaður er ungu fólki heldur Sinfónían leik- og grunnskólatónleika.
Lesa meira