Hljóðfæraleikarar
Guðbjartur Hákonarson
- Deild: Víóla
Samhliða námi í Kaupmannahöfn var Guðbjartur fastráðinn um tveggja ára skeið við Konunglegu Dönsku Óperuhljómsveitina þar sem hann lék bæði í fyrstu fiðlu- og víóludeild hljómsveitarinnar. Auk þess hefur hann komið fram með Dönsku Útvarpshljómsveitinni og Fílharmóníusveit Kaupmannahafnar. Hann er víóluleikari í Resonans strengjakvartettinum, sem komst árið 2023 í úrslit Kammermúsíkkeppninnar P2 sem haldin er á vegum danska ríkisútvarpsins.
Guðbjartur hefur komið fram sem einleikari með Sinfóníuhljómsveit Íslands sem sigurvegari í keppninni Ungir einleikarar, auk þess sem hann hefur leikið einleik með Sinfóníuhljómsveit áhugamanna, JSOM Ballet Ensemble og JSOM Baroque Orchestra. Hann hefur einnig komið fram sem konsertmeistari hljómsveita á borð við Kammersveit Mallorca, Aurora Festival Orchestra og Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands. Sem flytjandi kammertónlistar hefur Guðbjartur komið fram víðsvegar um Bandaríkin og Evrópu. Hann stofnaði strengjakvartettinn Von í Bandaríkjunum sem vann til ýmissa verðlauna, en kvartettinn hlaut m.a. annað sæti í WDAW kammermúsíkkeppninni í Norður Karólínu og fyrsta sæti í Kuttner strengjakvartettkeppninni tvö ár í röð. Í framhaldi af því var kvartettinn staðarkvartett við Jacobs School of Music tvö ár í röð. Með strengjakvartettinum Von dvaldi Guðbjartur sem staðarlistamaður við Banff Strengjakvartetthátíðina í Kanada og kom fram á virtum tónlistarhátíðum á borð við Heifetz Institute í Virginíu, Robert Mann String Quartet Institute í New York og Aspen Music Festival í Colorado.
Auk sinfónískrar tónlistar hefur Guðbjartur verið virkur í upptökuvinnu og spilað inn á fjölda verkefna í hljóðveri. Þar má meðal annars nefna plötuna Poems með Viktori Orra og Álfheiði Erlu, sem var gefin út af Deutsche Grammophon. Guðbjartur leikur á fiðlu eftir Joseph Bassot frá árinu 1790 og víólu eftir Hans Jóhannsson frá 2024.
