EN

Sinfónían á Myrkum músíkdögum

Tryggðu þér besta verðið með 20% afslætti með því að kaupa miða á ferna tónleika eða fleiri – Regnbogakort
Dagsetning Staðsetning Verð
31. jan. 2019 » 19:30 » Fimmtudagur Eldborg | Harpa 2.500 - 4.500 kr.

Á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands á Myrkum músíkdögum 2019 verða blásturshljóðfæri í forgrunni. Flautukonsert Þuríðar Jónsdóttur frá árinu 2008 er meistaraleg tónsmíð þar sem hún blandar saman einleiksflautu, hljómsveit og krybbu- og engisprettuhljóðum. Ítalski flautuleikarinn Mario Caroli sérhæfir sig í flutningi nýrrar tónlistar og frumflutti konsert Þuríðar með miklum glæsibrag árið 2009. Nýr konsert Páls Ragnars Pálssonar fyrir flautu og fagott hljómar hér í fyrsta sinn. Verkið er sérstaklega samið fyrir Hallfríði Ólafsdóttur, 1. flautuleikara Sinfóníunnar og eistneska fagottleikarann Martin Kuuskmann sem hefur sömuleiðis vakið heimseftirtekt fyrir túlkun sína á nýrri tónlist og hefur þrívegis verið tilnefndur til Grammy-verðlauna fyrir túlkun sína.

Þá eru hljómsveitarverk eftir Maríu Huld Markan Sigfúsdóttur og Veronique Vöku frumflutt á tónleikunum auk þess sem nýtt verk eftir Önnu Þorvaldsdóttur, staðartónskáld hljómsveitarinnar, hljómar í fyrsta sinn á Íslandi. Verkið var samið fyrir Fílharmóníuhljómsveitina í New York og frumflutt þar í apríl síðastliðnum undir stjórn Esa-Pekka Salonen. Það er til marks um stöðu Önnu í tónlistarheiminum að hin víðfræga Fílharmóníuhljómsveit Berlínar flutti þetta nýja verk fyrir fáeinum dögum.

Breytt dagskrá: Upphaflega stóð til að Ungsveit SÍ og Kór LHÍ myndu flytja verkið HandsFree eftir Önnu Meredith á tónleikunum en vegna óviðráðanlegra ástæðna verður ekki af því.

Sækja tónleikaskrá