Ýmsir tónleikar
Ýmsir spennandi tónleikar utan tónleikaraða eru í boði á starfsárinu.
Páll Óskar syngur vinsælustu lög sín eins og honum einum er lagið. Þá verður kvikmynd Chaplins, Borgarljós, flutt með lifandi tónlist og perlur kvikmyndatónlistar hljóma auk þess undir stjórn Benjamins Shwartz.
Þar má nefna tónlist Johnny Greenwood úr Radiohead sem var notuð í Óskarsverðlaunamyndinni There Will Be Blood frá árinu 2007.
Daníel Bjarnason stjórnar nýjum íslenskum einleikskonsertum á Myrkum músíkdögum og á tónleikum Ungsveitar SÍ leika yfi r 80 íslenskir tónlistarnemar undir stjórn Rumons Gamba.
Ýmsir tónleikar 2010/11
02. október - Ungsveit Sinfóníuhljómsveitar Íslands
Modest Músorgskíj: Nótt á nornagnípu
Pjotr Tsjajkovskíj: Sinfónía nr. 4
Rumon Gamba hljómsveitarstjóri
04. & 05. nóvember - Páll Óskar og Sinfó
Lög úr Silfursafni Páls Óskars í glæsilegum hljómsveitar útsetningum, m.a. Betra líf, Allt fyrir ástina og Þú komst við hjartað í mér.
Bernharður Wilkinson hljómsveitarstjóri
Páll Óskar Hjálmtýsson einsöngvari
11. nóvember - Chaplin-tónleikar
Charles Chaplin: Borgarljós (City Lights)
Frank Strobel hljómsveitarstjóri
13. janúar - Ungir einleikarar
Sigurvegarar úr einleikarakeppni SÍ og Listaháskóla Íslands
Bernharður Wilkinson hljómsveitarstjóri
20. janúar - Kvikmyndatónlistarveisla
Tónlist úr frægum kvikmyndum, m.a. kaflar úr Psycho eftir Bernard Herrmann, Cinema Paradiso eftir Ennio Morricone og Guðföðurnum eftir Nino Rota. Auk þess verður flutt Popcorn Superhet Receiver eftir Jonny Greenwood úr Radiohead sem var í Óskarsverðlaunamyndinni There Will Be Blood frá árinu 2007.
Benjamin Shwartz hljómsveitarstjóri
27. janúar - Myrkir músíkdagar
Daníel Bjarnason: Nýtt verk
Steingrímur Rohloff: Konsert fyrir bassaklarínett
Finnur Torfi Stefánsson: Fiðlukonsert
György Ligeti: Atmosphéres
Daníel Bjarnason hljómsveitarstjóri
Rúnar Óskarsson einleikari
Sigrún Eðvaldsdóttir einleikari


