Sala nýrra áskriftakorta á tónleikaraðir hefst 6. júní. (Sala Regnbogakorta hefst 16. ágúst). Endurnýjun er hafin og eru sæti frátekin fyrir áskrifendur til 16 ágúst. Áskriftasala er í miðasölu Hörpu og í síma 528-5050 . Áskrift veitir þér 20% afslátt af venjulegu miðaverði og er jafnframt hvatning til að sækja tónleika reglulega. Sem áskrifandi gengurðu alltaf að þínu fasta sæti vísu og átt forkaupsrétt að því þegar áskrift er endurnýjuð. Jafnframt fá áskrifendur 10% afslátt af viðbótarmiðum á alla tónleika. Ef keyptar eru tvær áskriftarraðir, t.d. Gul og Rauð er veittur 25% afsláttur. Ef keyptar eru þrjár raðir, Gul, Rauð og Græn er veittur 30% afsláttur. Boðið er upp á léttgreiðslur til allt að 4 mánaða.
Fyrir þá sem vilja heyra fjölbreytilega klassíska tónlist er Gula röðin afbragðs kostur.
Hér eru glæsileg og litrík hljómsveitarverk í forgrunni, allt frá ljúfum sinfóníum Mozarts og Schuberts yfir í mögnuð stórvirki eftir Mahler og Sibelius. Þá má nefna Beethoven-hringinn, en í gulu röðinni eru m.a. Sveitasinfónían og Örlagasinfónían, sem er eitt þekktasta klassíska tónverk allra tíma.
Hljómsveitarstjórarnir eru allir í hæsta gæðaflokki og sama má segja um einleikara og –söngvara. Sigrún Eðvaldsdóttir leikur einleik í glæsilegum fiðlukonserti Sjostakovitsj og þýska sópransöngkonan Christine Schäfer syngur aríur eftir Mozart afsinni alkunnu snilld.
Í Rauðu röðinni eru stór verk fyrir hljómsveit í forgrunni, til dæmis Sinfónískir dansar Rakhmaninoffs og sinfónía nr. 11 eftir Sjostakovitsj.
Tvennir tónleikar eru helgaðir Beethoven-hringnum, þar sem meðal annars hljóma Eroica-sinfónían og Níunda sinfónían með einvalaliði einsöngvara.
Þá verður efnt til glæsilegrar Mozart-veislu undir stjórn hins margverðlaunaða stjórnanda Pauls McCreesh.
Meðal einleikara má nefna fiðlusnillinginn Hilary Hahn, sem vakti verðskuldaða hrifningu á tónleikum með hljómsveitinni í fyrra, og píanóleikarann Viktoriu Postnikovu sem nú leikur með SÍ í annað sinn á þessu ári.
Þeir sem hafa gaman af vinsælli klassík af léttara taginu ættu að kynna sér Grænu röðina. Hún er tilvalin fyrir þá sem eru að stíga fyrstu skrefin inn í heim sígildrar tónlistar, en alvanir tónleikagestir finna þar líka margt við sitt hæfi.
Helst ber að nefna hið stórfenglega tónverk Pláneturnar, sem hefur orðið mörgu kvikmyndatónskáldinu innblástur, og píanókonsert nr. 2 eftir Rakhmaninoff.
Þýska sópranstjarnan Simone Kermes flytur eftirlætis barokkaríurnar sínar, og heilir tónleikar verða tileinkaðir meistaraverkum Mozarts. Messías eftir Händel kemur öllum í hátíðarskap á aðventutónleikum í desember með einsöngvurum á heimsmælikvarða. Þá eru hinir bráðskemmtilegu Vínartónleikar ómissandi upphaf á nýju ári.
Sjá tónleika í Grænu röðinni
Litli tónsprotinn er áskrift að góðri skemmtun fyrir alla fjölskylduna. Hér fá yngstu tónlistarunnendurnir einstakt tækifæri til að kynnast töfrum tónlistarinnar á klukkustundarlöngum tónleikum.
Fyrstu tónleikarnir eru hluti af nýrri röð sem mun dreifast yfir næstu starfsár og ber yfirskriftina Hljómsveitin kynnir sig, þar sem einleikarar úr Sinfóníuhljómsveitinni kynna hljóðfæri sín fyrir hlustendum. Sinfónían bregður sér upp í sveit á tónleikunum Úti í náttúrunni og þar má heyra bæði fuglasöng og þrumuveður.
Hinn sívinsæli Maxímús Músíkús lætur til sín taka í nýju ævintýri þar sem hann kemst í kynni við bæði ballettdansara og tónlistarmenn, og á Jólatónleikunum hljóma vinsæl jólalög í bland við kafla úr Hnotubrjótnum.
Auk fastra tónleikaraða eru ýmsir spennandi tónleikar í boði á starfsárinu.
Víkingur Heiðar og Ashkenazy leiða saman hesta sína á ný í glæsilegum píanókonserti Rakhmaninoffs, og á tónleikum Ungsveitar SÍ leika um 100 íslenskir tónlistarnemar undir stjórn Baldurs Brönniman. Njósnari hennar hátignar heldur upp á sextíu ár á hvíta tjaldinu með eftirminnilegum James Bondtónleikum, og stórfengleg sinfónía Howards Shore með tónlistinni úr Hringadróttins-myndunum hljómar á tónleikum í febrúar.
Ný og spennandi tónlist hljómar á Norrænum músíkdögum í október og Myrkum músíkdögum í janúar, auk þess sem Ilan Volkov, nýr aðalstjórnandi Sinfóníunnar, efnir til metnaðarfullrar tónlistarhátíðar í byrjun mars þar sem hann hefur valið sérlega áhugaverða dagskrá með tónlist eftir erlenda og innlenda meistara.
Sjá tónleika utan raða