Baggalútur og Sinfó á sumartónleikum í Eldborg
Miðasala er í fullum gangi á tónleika Baggalúts og Sinfó 13. og 15. júní í Eldborg. Leikin verða fjölmörg gríðarlega vinsæl, fjörug, hugljúf og ástsæl lög Baggalúts, listilega útsett fyrir hljómsveitina af vandvirku fagfólki – þar sem listrænir núansar og blæbrigði í melódíum og textum fá notið sín til fulls. Reynt verður á þanþol og taugar hljóðfæraleikara og hraðamet í hljóðfæraslætti slegin. Hljómsveitarstjóri er Ross Jamie Collins, staðarhljómsveitarstjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands.
Hér má finna nánari upplýsingar um tónleikana.
- Eldri frétt
- Næsta frétt