EN

2011

Fyrirsagnalisti

sinfo_harpa_listi

19. desember 2011 : Sinfónían tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna

Sinfóníuhljómsveitin hlýtur tvær tilnefningar til Íslensku tónlistarverðlaunanna í ár; annarsvegar sem tónlistarflytjandi ársins í flokki sígildrar- og samtímatónlistar og hinsvegar íflokki tónlistarviðburða ársins fyrir Opnunartónleika hljómsveitarinnar í Hörpu í maí sl.
Í mati dómnefndar segir; „Sinfóníuhljómsveit Íslands er einn af máttarstólpum íslensks tónlistarlífs og hefur blómstrað í nýju húsi á þessu ári.“
Lesa meira
ungir_einleikarar_stor

16. nóvember 2011 : Úrslit í einleikarakeppni LHÍ og SÍ

Dagana 11. og 12. nóvember síðastliðinn fór fram samkeppni Listaháskólans og Sinfóníuhljómsveitar Íslands um þátttöku einleikara eða einsöngvara á tónleikum hljómsveitarinnar þann 12. janúar næstkomandi.  Keppnin var ætluð tónlistarnemendum sem eru á bakkalárstigi í sínu námi.

Þáttakendur voru 14 að þessu sinni, fimm hljóðfæraleikarar og níu söngvarar. Sex manna dómnefnd valdi fjóra keppendur. Þeir eru Chrissie Thelma Guðmundsdóttir, fiðluleikari, Elín Arnardóttir, píanóleikari, Hrafnhildur Árnadóttir, söngkona, og Ísak Ríkharðsson, fiðluleikari.

Lesa meira

15. nóvember 2011 : SÍ ræður nýja starfmenn

Una Eyþórsdóttir hefur verið ráðin mannauðsstjóri SÍ frá og með 1. desember nk. og Hjördís Ástráðsdóttir hefur verið ráðin fræðslustjóri SÍ og mun hún hefja störf 1. janúar .

Lesa meira

14. nóvember 2011 : Sigríður og Sigurður -Nýr diskur 

Sigríður Thorlacius og Sigurður Guðmundsson ásamt SÍ

Lesa meira
krakkar_stor

11. nóvember 2011 : Grunnskólabörnum boðið á tónleika

Í næstu viku býður hljómsveitin gunnskólanemum úr 5-7 bekk á tónleika þar sem hljómsvein kynnir sig og krökkunum gefst tækifæri til að kynnast hljóðfærunum betur. Haldnir veða þrennir tónleikar í Eldborg enda munum við taka á móti allt að 3000 nemendum.

Kynnir á tónleikunum er Halldóra Geirharðsdóttir leikkona en hún hefur einstakt lag á að opna heim tónlistarinnar fyrir börnum, auka upplifun þeirra og ánægju. Hjómsveitarstjóri er Bernharður Wilkinson.

Lesa meira

2. nóvember 2011 : Samningar undirritaðir - verkfalli aflýst

Hljóðfæraleikarar Sinfóníuhljómsveitar Íslands undirrituðu kjarasamning í húsi ríkissáttasemjara nú á áttunda tímanum í kvöld. Verkfall hefur verið afboðað og ljóst að fyrirhugaðir tónleikar á fimmtudag og föstudag verða haldnir.

Lesa meira

2. nóvember 2011 : Kjaraviðræður standa yfir

 

Kjaraviðræður hljóðfæraleikara Sinfóníuhljómsveitar Íslands og ríkisins sanda nú yfir hjá ríkissáttasemjara og verið er að leita allra leiða svo ekki komi til boðaðra verkfallsaðgerða þann 3. og 4. nóvember næstkomandi.

Hægt er að fylgjast með fréttum af gangi mála hér á vefnum og í fjölmiðlum.

 

Ef til verkalls kemur verður þeim sem hafa keypt miða á tónleikana boðið að koma á aðra tónleika eða að fá miðana endurgreidda.

Lesa meira

22. október 2011 : Ályktun stjórnar Sinfóníuhljómsveitar Íslands

Ályktun stjórnar Sinfóníuhljómsveitar Íslands vegna stöðu kjaraviðræðna hljóðfæraleikara Sinfóníuhljómsveitarinnar og ríkisins.

Stjórn Sinfóníuhljómsveitar Íslands lýsir yfir þungum áhyggjum af stöðu mála í kjaraviðræðum hljóðfæraleikara Sinfóníuhljómsveitarinnar og ríkisins. Stjórnin hvetur málsaðila til að leita allra leiða svo ekki komi til boðaðra verkfallsaðgerða þann 3. nóvember næstkomandi.

Lesa meira

17. október 2011 : Ungsveitin hefur æfingar í Hörpu

Hljómsveitarnámskeið Ungsveitarinnar mun standa frá laugardeginum 15. október til sunnudagsins 6. nóvember 2011. Þetta er í Þriðja sinn Sinfóníuhljómsveit Íslands heldur námskeiðið og að þessu sinni fer það fram í Hörpu og endar með tónleikum í Eldborg sunnudaginn 6. nóvember kl. 14:00.

Að þessu sinni mun verkefni hljómsveitarinnar vera hin stórbrotna sinfónía nr. 5 eftir Mahler. Svissneski hljómsveitarstjórinn Baldur Brönnimann mun stjórna námskeiðinu en jafnframt munu nemendur njóta leiðsagnar leiðandi hljóðfæraleikara SÍ.

Lesa meira
daniel_stor

13. október 2011 : Í fyrsta sinn á Airwaves

Nú tekur Sinfóníuhljómsveitin í fyrsta sinn þátt í Iceland Airwave. Á þrennum tónleikum 13. október verða leikin verk eftir Daníel Bjarnason og Valgeri Sigurðsso, auk þess sem einn fremsti nútímatónlistarhópur Bandaríkjanna, ITC, flytur eitt af meistaraverkum mínímalismans, Different Trains eftir Steve Reich.


Kl. 20:00
Valgeir Sigurðsson: Draumalandið
Kl. 21:00
Daníel Bjarnason: Processions, píanókonsert
Daníel Bjarnason: Birting
Einleikari: Víkingur Heiðar Ólafsson
Kl. 22:00
Steve Reich: Different Trains
Einleikarar: ICE (International Contemporary Ensemble) strengjakvartett
Miðaverð er  2.500 kr. og gildir miðinn á alla þrenna tónleikana. Þeir sem kaupa sig inn á Airwaves fá ókeypis aðgang.


 

Lesa meira
Síða 1 af 5