EN

Eldbjørg og Tortelier

Áskrift að tónleikaröð eða Regnbogakorti tryggir þér öruggt sæti á besta verðinu með 20% afslætti
Dagsetning Staðsetning Verð
12. okt. 2023 » 19:30 » Fimmtudagur Eldborg | Harpa 3.000 - 9.200 kr.

Yan Pascal Tortelier var aðalhljómsveitarstjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands á árunum 2016–2019 og snýr nú aftur með spennandi efnisskrá í farteskinu þar sem tilfinningaþrungin og glæsileg tónlist frá Frakklandi og Finnlandi er í aðalhlutverki. Einleikari á tónleikunum er hin unga, norska fiðlustjarna Eldbjørg Hemsing sem á undanförnum árum hefur haslað sér völl sem einn kraftmesti fiðluleikari sinnar kynslóðar í Evrópu. Margir hrifust til að mynda af leik hennar við afhendingu Nóbelsverðlaunanna 2021 sem sjónvarpað var um víða veröld. 

Hún leikur hér hinn ægifagra fiðlukonsert Sibeliusar, ástaróð tónskáldsins til hljóðfærisins þar sem hugmyndaflug og einstakt tónmál hans nýtur sín til fulls. Tónleikarnir hefjast á hrífandi en sjaldheyrðum forleik franska tónskáldsins Gabriels Fauré að óperunni Pénélope frá 1913, sem samin var upp úr efni Ódysseifskviðu. Eftir hlé verður frumflutt verk eftir Yan Pascal Tortelier sjálfan, fyrir einleiksfiðlu og hljómsveit en svo hljómar hin stórbrotna Sinfónía í B-dúr eftir Ernest Chausson. Chausson var staksteinn í frönskum tónsmíðum í lok 19. aldar og fléttaði ólíkum stílbrigðum samtíðar sinnar saman í verk sem býr jöfnum höndum yfir dramatískri stærð og ljóðrænni fágun. 

Sækja tónleikaskrá