EN

Valgerður Guðnadóttir

Einsöngvari

Valgerður Guðnadóttir nam söng við Söngskólann í Reykjavík hjá Ólöfu Kolbrúnu Harðardóttur og Kolbrúnu Sæmundsdóttur og útskrifaðist af 8. stigi með hæstu einkunn vorið 1998. Ári síðar hélt hún til London þar sem hún stundaði söngnám hjá Lauru Sarti við framhaldsdeild Guildhall School of Music and Drama. Hún hefur tekið þátt í masterclass m.a. hjá Robin Stapleton, Emmu Kirkby og Graham Johnson. Valgerður hefur leikið og sungið í Borgarleikhúsinu, Þjóðleikhúsinu, Íslensku óperunni og víðar. Hún  hóf feril sinn sem María Magdalena í Jesus Christ Superstar og í kjölfarið fór hún með hlutverk Maríu í West Side Story í Þjóðleikhúsinu 18 ára gömul.

Meðal annarra hlutverka má nefna Maríu í Söngvaseiði, Barbarinu í Brúðkaupi Fígarós, Paminu í Töfraflautunni, Belindu í Dido & Eneas, Poppeu í Krýningu Poppeu, barnfóstruna í Turn of the Screw, Janet í Rocky Horror og Lindu í Gauragangi. Hún hefur haldið fjölda tónleika og komið víða fram sem einsöngvari, m.a. með kórum, í veraldlegum og kirkjulegum verkum. Valgerður hefur sungið inn á fjölmarga geisladiska og í nóvember 2010 kom út hennar fyrsta sólóplata, Draumskógur. Hún hefur jafnframt léð Disney-persónum eins Pocahontas, Mulan og Litlu Hafmeyjunni rödd sína og leikið og sungið í barnaleikritunum Ávaxtakörfunni, Benedikt búálfi og Hafinu bláa. Valgerður hlaut Grímuna, Íslensku leiklistarverðlaunin, sem söngvari ársins 2009 fyrir hlutverk sitt sem María í Söngvaseiði. Valgerður fór með hlutverk Papagenu í Töfraflautunni árið 2011 hjá Íslensku óperunni og söng einnig í uppfærslum ÍÓ á Carmen og Rakaranum í Sevilla.