Vinafélagið
Öflugt bakland Sinfóníuhljómsveitarinnar
Vinafélag Sinfóníuhljómsveitar Íslands var stofnað árið 2002. Markmið þess er að efla áhuga á starfi Sinfóníuhljómsveitar Íslands og rækta tengsl við þá sem bera hag hennar fyrir brjósti.
Vinafélag Sinfóníuhljómsveitarinnar styrkir einnig fjárhagslega ákveðin verkefni tengd hljómsveitinni. Árið 2007 styrki félagið gerð heimildamyndar RÚV um tónleikaferð Sinfóníuhljómsveitarinnar til Þýskalands, árið 2008 nýja heimasíðu og árið 2009 styrkti félagið skólatónleika Sinfóníunnar. Vinafélagið hefur einnig staðið fyrir tónleikakynningum og málfundum um stöðu Sinfóníunnar og hyggst áfram vera vettvangur fyrir umræðu um málefni hljómsveitarinnar.
Allir geta orðið meðlimir í Vinafélaginu og hægt er að skrá sig með því að senda póst á vinafelag@sinfonia.is og gefa upp nafn, netfang, kennitölu og heimilisfang. Einnig er hægt að skrá sig í miðasölu Hörpu. Árgjald Vinafélagsins er 3000 krónur.
Tónleikakynningar
Félagið stendur meðal annars fyrir tónleikakynningum í samvinnu við Sinfóníuhljómsveitna.
Stjórn Vinafélagsins er þannig skipuð:


