| Dagsetning | Staðsetning | Verð | ||
|---|---|---|---|---|
| 21. jan. 2027 » 20:00 » Fimmtudagur | Eldborg | Harpa | 6.900 - 14.900 kr. | ||
| Kaupa miða | ||||
-
Efnisskrá
Gunnar Þórðarson Nocturne, Vesturgata, Ef harpa þín þagnar, Bláu augun þín, Minning þín, Ljúfa langa sumar, Þú og ég, Ástarsæla, Þitt fyrsta bros, Forleikur úr óperunni Ragnheiði, Tilbrigði við fegurð, Lífsgleði, Við Reykjavíkurtjörn, Við saman, Er hann birtist, Himinn og jörð, Húsin í bænum, Gaggó vest, Vetrarsól
-
Hljómsveitarstjóri
Hjörtur Páll Eggertsson
-
Söngvarar
Árný Margrét Sævarsdóttir
Jón Jónsson
Katrín Halldóra Sigurðardóttir
Páll Óskar Hjálmtýsson
Ragnheiður Gröndal
Valdimar Guðmundsson
-
Útsetjarar
Gunnar Þórðarson
Haraldur Vignir Sveinbjörnsson
Hrafnkell Orri Egilsson
Szymon Kuran
Nokkrir af okkar fremstu söngvurum stíga á svið með Sinfóníuhljómsveit Íslands á einstökum tónleikum í Eldborg og flytja helstu dægurperlur Gunnars Þórðarsonar sem hafa öðlast sérstakan sess í hugum og hjörtum Íslendinga. Söngbókin er sérstaklega útsett fyrir sinfóníuhljómsveit og söngvara og má þar nefna lög eins og Þitt fyrsta bros, Minning þín, Vetrarsól, Ljúfa langa sumar, Þú og ég, Bláu augun þín, Gaggó vest og fleiri perlur meistarans.
Ferill Gunnars Þórðarsonar var einstakur og eftir hann liggja yfir fimm hundruð lög sem þjóðin hefur gert að sínum í gegnum árin. Hann samdi einnig fjölda verka fyrir sinfóníuhljómsveit, kóra og söngvara og ber þar hæst óperuna Ragnheiður. Það er því engum ofsögum sagt að Gunnar sé í hópi allra áhrifamestu listamanna íslenskrar tónlistarsögu.
Söngvarar á tónleikunum eru Árný Margrét, Jón Jónsson, Katrín Halldóra, Páll Óskar, Ragnheiður Gröndal og Valdimar Guðmundsson en um tónsprotann heldur Hjörtur Páll Eggertsson. Með slíkt úrvalslið listamanna á sviðinu í Eldborg er óhætt að lofa tilfinningaþrungnum og kröftugum tónleikum.
