Söngbók Gunna Þórðar
Miðasala hefst laugardaginn 31. október
Við höfum bætt nýjum tónleikum við dagskrá starfsársins!
Nokkrir af okkar fremstu söngvurum stíga á svið með Sinfóníuhljómsveit Íslands í Eldborg og flytja helstu dægurperlur Gunnars Þórðarsonar í sérstökum útsetningum fyrir sinfóníuhljómsveit og söngvara. Á efnisskrá eru Þitt fyrsta bros, Vetrarsól, Þú og ég, Bláu augun þín og fleiri perlur meistarans sem hafa öðlast sérstakan sess í hugum og hjörtum Íslendinga.
Ferill Gunnars Þórðarsonar var einstakur og eftir hann liggja yfir fimm hundruð lög sem þjóðin hefur gert að sínum í gegnum árin. Hann samdi einnig fjölda verka fyrir sinfóníuhljómsveit, kóra og söngvara. Það er því engum ofsögum sagt að Gunnar sé í hópi allra áhrifamestu listamanna íslenskrar tónlistarsögu.
Söngvarar á tónleikunum eru Árný Margrét, Jón Jónsson, Katrín Halldóra, Páll Óskar, Ragnheiður Gröndal og Valdimar Guðmundsson en um tónsprotann heldur Hjörtur Páll Eggertsson. Með slíkt úrvalslið listamanna á sviðinu í Eldborg er óhætt að lofa tilfinningaþrungnum og kröftugum tónleikum.
Almenn miðasala hefst laugardaginn 31. október!
Nánar um viðburðinn Kaupa miða
- Eldri frétt
- Næsta frétt
