Hugi Guðmundsson
Staðartónskáld
Hugi Guðmundsson er nýtt staðartónskáld Sinfóníu hljómsveitar Íslands til tveggja ára. Hann hefur fyrir löngu skipað sér í röð athyglisverðustu tónskálda þjóðarinnar. Hugi lærði tónsmíðar við tónfræðadeild Tónlistarskólans í Reykjavík, Konunglega danska tónlistarháskólann og raftónlist við Sonology stofnunina í Haag. Hann hefur hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga, innanlands og á alþjóðlegum vettvangi. Sem staðartónskáld hljómsveitarinnar mun Hugi semja fjögur hljómsveitarverk af ólíkum toga. Á upphafstónleikum starfsársins verður frumflutt nýtt verk, Undark, undir stjórn Barböru Hannigan. Þá vinnur Hugi að konsert fyrir Hannigan sem hefur hlotið nafnið Freyja og verður frumfluttur í maí 2027. Hugi vinnur einnig að tveimur öðrum tónverkum sem hljómsveitin frumflytur starfsárið 2027–28.
