EN

Fyrir börn

Fyrirsagnalisti

Litli tónsprotinn - fjölskylduröðin

Litli tónsprotinn er röð vandaðra fjölskyldutónleika þar sem verkefnaval miðast við börn frá fimm ára aldri. Þrennir tónleikarnir eru í röðinni sem allir eru haldnir á laugardögum kl. 14.00. Tónleikarnir eru um klukkustundar langir og án hlés.

Á Litla tónsprotanum kynnast börn á öllum aldri töfraheimi tónlistarinnar á lifandi og skemmtilegan hátt.

Litli tónsprotinn

Pínulitli Tónsprotinn

- fyrir þau allra yngstu

Tónleikar Pínulitla tónsprotans er ætlaðar yngstu hlustendunum. Þar er flutt létt og skemmmtileg tónlist sem er sérstaklega sniðin að þeim hópi sem er of ungur til að sitja heila tónleika í Litla tónsprotanum. Sérstakur gestur er Maxímús Músíkús. Tónleikarnir er haldnir í opnu rými í Flóa á 1. hæð í Hörpu.

Aðgangur er ókeypis og gott er að taka með sér púða til að sitja á.

Maxímús Músíkús

Tónlistarmús

Maxímús Músíkús er fyrir löngu orðinn heimilisvinur barna á Íslandi. Ævintýrið um þessa tónelsku mús hljómaði fyrst á tónleikum Sinfóníuhljómsveitarinnar í maí 2008. Í kjölfarið fylgdi músagangur víða veröld og hafa sögur af Maxa, tónelsku músinni frá Íslandi, komið út á mörgum tungumálum og tónleikarnir hljómað fyrir um 130 þúsund ungmenni um víða veröld.