EN

Tomáš Hanus

Aðalgestastjórnandi

Hljómsveitarstjórinn Tomáš Hanus er aðalgestastjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands. 

Tomáš Hanus er fæddur í Brno og útskrifaðist frá tónlistarháskólanum í Janáček með Jiří Bělohlávek sem leiðbeinanda. Á árunum 2016 til 2026 gegndi hann stöðu aðalhljómsveitarstjóra Velsku þjóðaróperunnar, og hann stjórnar reglulega hjá Vínaróperunni, Bayerische Staatsoper í München, Opéra National de Paris og La Scala í Mílanó. Í nóvember 2026 þreytti hann frumraun sína hjá Metropolitan-óperunni í New York. 

Tomáš Hanus stjórnaði Sinfóníuhljómsveit Íslands í fyrsta sinn í Háskólabíói árið 2009 í verkum eftir Smetana, Dvořák og Martinů. Hann kom aftur árið 2023, með stuttum fyrirvara, og stjórnaði þá tvíhljóðfærakonsert Martinůs, píanókonsert nr. 27 eftir Mozart með píanistanum Eric Lu og áttundu sinfóníu Dvořáks. Tónleikarnir heppnuðust svo vel að honum var stuttu síðar boðin staða aðalgestastjórnanda hljómsveitarinnar og tók við stöðunni starfsárið 2025/26 og hefur hún nú þegar verið framlengd til og með starfsársins 2027/28.