EN

Leonskaja leikur Mozart

Áskrift að tónleikaröð eða Regnbogakorti tryggir þér öruggt sæti á besta verðinu með 20% afslætti
Dagsetning Staðsetning Verð
29. apr. 2027 » 19:30 » Fimmtudagur Eldborg | Harpa 3.100 - 11.500 kr.
Miðasala hefst 8. júní
  • Efnisskrá

    Wolfgang Amadeus Mozart Píanókonsert nr. 24
    Bedřich Smetana Má vlast / Föðurland mitt

  • Hljómsveitarstjóri

    Tomáš Hanus

  • Einleikari

    Elisabeth Leonskaja píanó

Elisabeth Leonskaja hefur átt glæstan feril sem píanóleikari í um 60 ár -og þessi hógværa drottning hljóðfærisins heillar enn áheyrendur með litskrúðugum leik sínum og innblásinni túlkun. Á tónleikunum leikur hún hinn gullfallega píanókonsert nr. 24 í c-moll eftir W.A. Mozart, sem er einn af hans þekktustu og mest leiknu píanókonsertum. 

Tomáš Hanus, aðalgestastjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands, leiðir hljómsveitina einnig í gegnum hið stórfenglega Má vlast eftir samlanda sinn, tékkneska tónskáldið Bedřich Smetana. Tónverkið hefur aldrei áður verið flutt hér í heild sinni en það er samsett úr sex sjálfstæðum tónaljóðum sem öll tengjast náttúru og sögu Bæheims. Annað tónaljóðið, Moldá, er langþekktasti hluti verksins og hefur margoft verið leikið af Sinfóníuhljómsveit Íslands.