Elisabeth Leonskaja
Píanó
Rússneski píanóleikarinn Elisabeth Leonskaja, sem fædd er í Tbilisi, hefur um langt skeið verið talin meðal fremstu píanóleikara samtímans. Hún hlaut verðlaun í virtum alþjóðlegum píanókeppnum meðan hún var enn við nám í Moskvu-tónlistarháskólanum og listrænn þroski hennar mótaðist mjög af vináttu og samstarfi við Sviatoslav Richter.
Leonskaja yfirgaf Sovétríkin árið 1978 og settist að í Vínarborg. Síðan þá hefur hún komið fram með mörgum fremstu hljómsveitum og stjórnendum heims, leikið á helstu tónleikaröðum og hátíðum og sinnt kammertónlist af mikilli alúð.
Viðamikill hljómplötuferill hennar spannar rómaðar hljóðritanir á verkum eftir Ravel, Enescu, Debussy, Schubert, Schumann, Mozart og Beethoven. Meðal fjölmargra heiðursviðurkenninga hennar eru austurríski heiðurskrossinn fyrir vísindi og listir, æðsta listaviðurkenning Georgíu og ICMA-verðlaunin fyrir ævistarf árið 2020
