Sinfóníuhljómsveit Íslands og Aton verðlaunuð á ADCE
Kynningarefni Sinfóníuhljómsveitar Íslands hlaut þrenn verðlaun á ADCE-verðlaunahátíðinni sem haldin var í Barcelona síðastliðinn föstudag. Alls var Sinfóníuhljómsveitin tilnefnd til fimm verðlauna í ár, en efnið er hannað af Aton og Sigurði Ými.
Efni Sinfóníuhljómsveitarinnar fékk verðlaun í eftirfarandi flokkum:
- Hreyfihönnun/Motion Design: Gull
- Myndlýsingar/Illustration: Silfur
- Mörkun/Corporate brand identity: Brons
ADCE, eða Art Directors Club Europe, eru evrópsk samtök sem verðlauna það besta í grafískri hönnun og auglýsingum, en Félag íslenskra teiknara, FÍT, er aðili að samtökunum og eru sigurvegarar FÍT verðlaunanna sjálfkrafa tilnefndir til verðlauna ADCE.


Aton hefur séð um hönnun og framleiðslu kynningarefnis fyrir Sinfóníuhljómsveit Íslands undanfarin ár, en fyrir starfsárið 2025-2026 var ákveðið að búa til lykilmyndefni fyrir starfsárið sem og að uppfæra ásýnd fyrir vörumerki Sinfóníunnar.
Merki sveitarinnar var hreinteiknað og aðlagað stærðar- og samhengiskröfum nútímans. Ný leturgerð var valin, LFS Adelia, en hún er innblásin af norrænni list og menningu 20. aldar - fáguð og leikandi í senn.
Hvað varðar herferð fyrir starfsárið 25/26 var áfram unnið með blóm og gróður og samspil flóru og tónlistar. Kafað var enn dýpra í blómahafið og hugmyndin víkkuð út til að skapa nýtt lykilmyndefni. Fjórða árið í röð fékk Aton Sigurð Ými til liðs við sig til að teikna, hanna og kalla fram hreyfingar blómanna í þrívídd. Blómin dansa í takt við tónbrot úr flutningi Sinfóníuhljómsveitar Íslands á verki Ígors Stravinskíjs, Vorblótinu.
Niðurstaðan er skalanlegt, skýrt og fjölhæft hönnunarkerfi sem skapar ramma – og þar með frelsi – fyrir Sinfóníuna til að blómstra.
Margrét Ragnarsdóttir, markaðs- og kynningarstjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands:
„Það er einkar ánægjulegt að kynningarefnið okkar sé heiðrað með þessum hætti, en ADCE verðlaunin eru ein þau virtustu á þessu sviði í heiminum. Við erum líka mjög stolt af þeirri vinnu sem við höfum unnið í samstarfi við Aton og Sigurð Ými. Sú flóra lita og tóna sem efnið byggir á endurspeglar vel gildi hljómsveitarinnar og virði hennar fyrir íslenskt samfélag og það er gaman að sjá hugmyndina verðlaunaða á alþjóðavettvangi.“
Sif Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Aton:
„Hönnunin sem við unnum fyrir Sinfóníuhljómsveit Íslands ásamt Sigurði Ými er afrakstur ótrúlega mikillar vinnu hjá okkar fólki og eru verðlaunin núna svo sannarlega verðskulduð. Hönnunarteymið okkar hér á Aton hefur enn og aftur sýnt fram á að því stendur enginn framar á landinu og að vinnan sem það vinnur er á heimsmælikvarða. Mér er líka ljúft og skylt að þakka Sinfóníuhljómsveitinni fyrir frábært samstarf í gegnum árin, því árangur sem þessi verður aðeins til með náinni samvinnu og gagnkvæmu trausti.“
