EN

Fréttasafn: 2023

Fyrirsagnalisti

30. desember 2023 : Annáll 2023

Sinfóníuhljómsveit Íslands lék fyrir um 90.000 gesti hér heima og erlendis á 92 fjölbreyttum og litríkum tónleikum á árinu sem er að líða.

Hápunktur ársins var tónleikaferð hljómsveitarinnar til Bretlands í apríl þar sem haldnir voru sjö tónleikar undir stjórn Evu Ollikainen aðalhljómsveitarstjóra. Einleikari í ferðinni var Stephen Hough sem er jafnan talinn í hópi virtustu og fjölhæfustu píanóleikara samtímans. 

Lesa meira

27. desember 2023 : Anna Þorvaldsdóttir og Sinfónían valin á topplista The New York Times

Platan ARCHORA / AIŌN með verkum Önnu Þorvaldsdóttur í flutningi Sinfóníuhljómsveitar Íslands undir stjórn Evu Ollikainen aðalhljómsveitarstjóra SÍ var valin á lista yfir bestu klassísku plötur ársins 2023 hjá dagblaðinu The New York Times.

Lesa meira

6. desember 2023 : Jólalest Sinfóníunnar á ferð og flugi

Sinfóníuhljómsveit Íslands verður í hátíðarskapi í desember og heldur opna jólastund í Flóa í Hörpu í hádeginu, mánudaginn 18. desember. Þar verður flutt falleg jólatónlist sem kemur öllum í sannkallað jólaskap.

Tónleikarnir hefjast kl. 12:00 og er aðgangur ókeypis.

Lesa meira

27. nóvember 2023 : 20% afsláttur á Harry Potter kvikmyndatónleika

Í dag býður Sinfóníuhljómsveit Íslands upp á 20% afslátt af miðum á kvikmyndatónleikana Harry Potter og fanginn frá Azkaban™. Myndin er byggð á þriðju bókinni í þessum ástsæla bókaflokki og birtist hér á hvíta tjaldinu með lifandi undirleik Sinfóníuhljómsveitar Íslands. 

Tilboðið gildir aðeins í dag og aðeins á netinu – þú getur keypt miða á tónleikana með 20% afslætti með því að smella hér.

Lesa meira

20. nóvember 2023 : Einstakar jólastundir

Sinfóníuhljómsveit Íslands leikur á einstökum jólastundum í Hörpu 11. og 12. Desember næstkomandi. Nemendur úr vinaskólum hljómsveitarinnar, Klettaskóla, Arnarskóla og leikskólanum Sólborg ásamt nemendum af táknmálssviði Hlíðaskóla og börnum og ungmennum í Blindrafélaginu eru gestir á jólastundunum. 

Lesa meira

20. nóvember 2023 : Upplifun í jólapakkann

Gjafakort Sinfóníunnar fást hér á vefnum og í miðasölu Hörpu. Þau eru tímalaus og renna ekki út.

Með gjafakortinu geta tónlistarunnendur á öllum aldri valið tónleika úr dagskrá Sinfóníunnar, t.d. hátíðlega Vínartónleika, Harry Potter kvikmyndatónleika, Mahler nr. 3 eða hvað sem hæfir áhuga og smekk. Settu upplifun í jólapakkann.

Smelltu hér fyrir nánari upplýsingar um gjafakortið.

Lesa meira

17. nóvember 2023 : Minningarorð um Reyni Sigurðsson

Við minnumst Reynis Sigurðssonar sem lést 2. nóvember síðastliðinn. Reynir var einstaklega hæfileikaríkur og fjölhæfur tónlistarmaður og einstakt prúðmenni. Hann starfaði sem slagverksleikari hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands frá árinu 1959, hlaut fastráðningu 1969 og lét af störfum árið 2001.

Lesa meira

6. nóvember 2023 : Undrabarnið sem fór í uppreisn

Leila Jozefowicz hefur verið í fremstu röð fiðluleikara heimsins um árabil. Eftir að hafa skotist upp á stjörnu­himininn sem unglingur á tíunda áratugnum með helstu rómantísku glæsiverkum fiðlubókmenntanna fór hún í auknum mæli að helga sig nýrri tónlist. Í dag hefur hún frum­flutt fjölmarga konserta eftir helstu tónskáld okkar tíma og veit ekkert skemmtilegra en að leyfa áheyrendum sínum að heyra eitthvað alveg nýtt.

Lesa meira

1. nóvember 2023 : Sinfóníukvöld í Sjónvarpinu


Upptaka frá tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands með píanóleikaranum Kirill Gerstein voru á dagskrá RÚV miðvikudaginn 1. nóvember. Á efnisskrá var þriðji píanókonsert Rakhmanínovs og blue cathedral eftir Jennifer Higdon. Hljómsveitarstjóri var Stéphane Denève. Tónleikarnir fóru fram fyrir fullu húsi í Eldborg 26. október síðastliðinn.  


Smelltu hér til þess að horfa á tónleikana.

Lesa meira

1. nóvember 2023 : Nýr grænn leiðarvísir fyrir norrænar sinfóníuhljómsveitir

Út er kominn nýr grænn leiðarvísir fyrir norrænar sinfóníuhljómsveitir sem var unninn í samvinnu Sinfóníuhljómsveitar Íslands, DEOO - samtök sinfóníuhljómsveita í Danmörku, BARC Scandinavia og Bæredygtigt Kulturliv.

Lesa meira
Síða 1 af 5