Fréttasafn
2015
Fyrirsagnalisti
Jólarúta SÍ á ferð um höfuðborgarsvæðið
ÚtdrátturSinfóníuhljómsveit Íslands er í sannkölluðu í sannkölluðu hátíðarskapi. Hljómsveitin bregður undir sig betri fætinum og heldur í rútuferð um höfuðborgarsvæðið þriðjudaginn 15. desember og miðvikudaginn 17. desember.
Lesa meiraSan Francisco ballettinn ásamt Sinfóníuhljómsveit Íslands
Á Listahátíð í Reykjavík í vor dansar San Francisco ballettinn valda kafla úr dáðustu verkum ballettsins undir stjórn Helga Tómassonar á alls 4 sýningum í Hörpu ásamt Sinfóníuhljómsveit Íslands.
Lesa meiraNýr jóladiskur með Sinfóníunni
Út er kominn nýr hljómdiskur Sinfóníuhljómsveitar Íslands, Jólalög. Þar leikur hljómsveitin jólatónlist frá ýmsum löndum og skapar sannkallaða hátíðarstemningu undir stjórn Bernharðs Wilkinsonar. Þar má nefna íslenska og ameríska jólaforleiki, Heims um ból, dansa úr Hnotubrjótnum, vals úr Jólatréssvítunni, Litla trommuleikarann og grípandi Sleðaferð Íslandsvinarins Leroys Anderson.
Lesa meiraNýr hljómdiskur: Fiðlukonsertar
Sigrún Eðvaldsdóttir er í hlutverki einleikarans á nýjum hljómdiski sem inniheldur fjóra af þekktustu fiðlukonsertum tónbókmenntanna frá 19. og 20. öld eftir Brahms, Dvořák, Sibelius og Berg. Konsertarnir eiga það sameiginlegt að einleikshlutverk þeirra allra er mjög krefjandi, bæði hvað tækni og mótun varðar en um leið er hlutverk hljómsveitarinnar íburðarmikið.
Lesa meiraNýtt myndband: Þórunn Ósk Marinósdóttir
Sinfóníuhljómsveitin frumsýndi nýlega nýtt myndband sem kynnir Þórunni Ósk Marinósdóttir, leiðandi víóluleikara við Sinfóníuhljómsveit Íslands. Myndbandið er annað í röðinni sem gerð verða í vetur og veita innsýn í fjölbreytt starf hljómsveitarinnar.
Lesa meiraEinleikarar á Jólatónleikum Sinfóníunnar
Pétur Orri Arnarsson, klarínettuleikari og Laufey Lín Jónsdóttir, sellóleikari, urðu hlutskörpust í áheyrnarprufum Sinfóníuhljómsveitar Íslands fyrir Jólatónleika Sinfóníunnar 2015. Þau leika einleik með Sinfóníunni í lagi Ingibjargar Þorbergs, Hin fyrstu jól, 12. og 13. desember.
Lesa meiraSigurvegarar í einleikarakeppni SÍ og LHÍ
Á hverju ári heldur Sinfóníuhljómsveitin í samstarfi við Listaháskóla Íslands einleikarakeppni sem er opin öllum tónlistarnemum á háskólastigi, óháð því hvaða skóla þeir sækja. Keppnin fór fram 7. nóvember og urðu 4 tónlistarnemar hlutskarpastir.
Lesa meiraSinfóníuhljómsveit Íslands fer landshorna á milli
Yan Pascal Tortelier ráðinn nýr aðalhljómsveitarstjóri
Sinfóníuhljómsveit Íslands hefur sent frá sér tilkynningu um ráðningu franska hljómsveitarstjórans Yan Pascal Tortelier í stöðu aðalhljómsveitarstjóra Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Tortelier er ráðinn til þriggja ára og tekur við stöðunni í byrjun starfsársins 2016-17 og stjórnar þá upphafstónleikum starfsársins.
Lesa meiraNýr hljómdiskur
- Nýrri fréttir
- Eldri fréttir