EN

4. júní 2026

Stárfsárið 2026/27 kynnt til leiks

Sinfóníuhljómsveit Íslands kynnir með stolti starfárið 2026/27. Nú hefst hefst nýr og ævintýralegur kafli þegar Barbara Hannigan tekur við sem aðalhljómsveitarstjóri og listrænn stjórnandi. „Sumar efnisskrár tónleika byggja á kunnuglegum hefðum en aðrar leiða okkur inn á óvæntar slóðir -hvort tveggja er nauðsynlegt. Og hvort tveggja er fyrir alla.“ segir Barbara Hannigan.

Sinfóníuhljómsveit Íslands og Barbara Hannigan hafa einnig kynnt gestalistamann starfársins, hinn virta franska píanóleikara Bertrand Chamayou og staðartónskálið Huga Guðmundsson.

Frá fyrstu kynnum mínum af Sinfóníuhljómsveit Íslands árið 2021 fann ég sérstök tengsl: sameiginlegan anda ímyndunarafls, hugrekkis og forvitni. Ég skynjaði framúrskarandi tónlistarmenn, en einnig sterka samkennd innan hópsins. Það er sjaldgæft meðal hljómsveita og ég met það mikils.

Barbara Hannigan

„Hér hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands erum við afar spennt að hefja formlega samstarf okkar við Barböru Hannigan sem aðalhljómsveitarstjóra og listrænan stjórnanda,“ segir Guðni Tómasson, framkvæmdastjóri hljómsveitarinnar. „Það er yfirlýst markmið að styrkja stöðu hljómsveitarinnar og staðfesta enn frekar hlutverk hennar í menningarlífi Íslands. Eins og aðdáendur hennar um allan heim vita er Barbara náttúruafl í tónlistarheiminum. Sýn hennar á tónlistina er einkar spennandi og við erum sannfærð um að næstu ár verði full af tónlistarlegum undrum.“

Tímabilið hefst með krafti: Attacca!-dagskránni þann 3. september 2026.