16. nóvember 2026
The Grotesque & The Sublime tilnefnd til Grammy-verðlauna
The Grotesque & The Sublime, plata Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Daníels Bjarnasonar, er tilnefnd til hinna vitu Grammy-verðlaunanna í flokknum Best Immersive Audio Album. Tilnefninguna fær hljóðmeistarinn Daniel Shores hjá útgáfunni Sono Luminus en hann sá um hljóðblöndun plötunnar. Upptökustjórn var í höndum Ragnheiðar Jónsdóttur en upptökur fóru fram í Hörpu í janúar 2025. Sinfóníuhljómsveit Íslands hefur átt í áralöngu farsælu samstarfi við Sono Luminus um útgáfu íslenskrar samtímatónlistar.
Platan kom út 27. febrúar 2026 hjá Sono Luminus en á henni flytur Sinfóníuhljómsveit Íslands þrjú verk eftir Daníel Bjarnason undir hans stjórn. FEAST er píanókonsert innblásinn af smásögu Edgars Allans Poe, The Masque of the Red Death, og leikur Frank Dupree einleik í verkinu. Inferno er slagverkskonsert byggður á Gleðileiknum guðdómlega eftir Dante, með Vivi Vassilevu sem einleikara. Fragile Hope er hljómsveitarverk samið til minningar um Jóhann Jóhannsson.
Tímaritið Limelight gaf plötunni fimm stjörnur þegar hún kom út, valdi hana sem Editor's Choice og hrósaði sérstaklega hljóðrituninni sem „state of the art“.
Árið 2020 voru Sinfóníuhljómsveit Íslands og Daníel Bjarnason hljómsveitarstjóri einnig tilnefnd til Grammy-verðlaunanna í flokknum Besti hljómsveitarflutningur fyrir diskinn Concurrence sem var einnig gefinn út hjá Sono Luminus.