Hugmyndir að Regnbogakorti
Fyrirsagnalisti
Íslenska röðin
Sinfóníuhljómsveit Íslands leikur fjölda íslenskra tónverka á starfsárinu og fær til liðs við sig fjölbreyttan hóp íslenskra listamanna. Á starfsárinu hljómar m.a. verk eftir Huga Guðmundsson, Önnu Þorvaldsdóttur, Hjálmar H. Ragnarsson og Báru Gísladóttur. Af listamönnum sem koma fram með hljómsveitinni má nefna Ástu Dóru Finnsdóttur, Geirþrúði Önnu Guðmundsdóttur, Hörpu Ósk, Björnsdóttur, Arnheiði Eiríksdóttur, Daníel Bjarnason, Ólaf Kjartan Sigurðsson og fleiri.
Barbara Hannigan
Barbara Hannigan tekur við sem aðalhljómsveitarstjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands starfsárið 2026/27 og býður upp á fjölbreytt úrval spennandi tónleika á sínu fyrsta starfsári með hljómsveitinni.
Stórbrotið og spennandi
Ómissandi á Regnbogakort þeirra sem vilja kraftmikla og stórbrotna sinfóníutónleika. Hér má meðal annars finna tónlist efftir Bruckner, Mahler, Shostakovitsj, Prokofíev og Brahms.
Hátíðardagskrá Sinfóníunnar
Hátíðardagskrá hljómsveitarinnar hefst að vanda með aðventutónleikum 3. desember í Eldborg. Þar mun sellistinn Geirþrúður Anna leika sellókonsert nr. 2 í D-dúr eftir Haydn og Mathew Halls stjórna hátíðlegri balletttónlist úr óperunni Idomeneo eftir Mozart. Jólatónleikar Sinfóníunnar í Litla tónsprotanum verða á sínum stað 12. og 13. desember þar sem hljómsveitin flytur sígildar jólaperlur og klassísk jólaævintýri á tónleikum fyrir alla fjölskylduna ásamt fjölda góðra gesta. Við fögnum svo nýju tónlistarári á hinum sívinsælu Vínartónleikum í upphafi árs 7. - 9. janúar ásamt glæsilegum einsöngvurum og dönsurum!
