EN

Hugmyndir að Regnbogakorti

Fyrirsagnalisti

Einleikarar og söngvarar í fremstu röð

Hver stjarnan á fætur annarri mætir til leiks á næsta starfsári. Píanóleikarinn Alice Sara Ott sækir Ísland heim ásamt einsöngvurunum Ninu Stemme og Stuart Skelton. Tónskáldið, fiðluleikarinn og söngkonan Caroline Shaw verður einnig gestur á starfsárinu sem og píanóleikarinn Francesco Piemontesi. Sellóleikarinn Kian Soltani leikur á þrennum tónleikum á starfsárinu en hann er jafnframt staðarlistamaður Sinfóníuhljómsveitar Íslands 2025/26.


 

Endurnýja

 

Íslenska röðin

 

Á starfsárinu flytur Sinfóníuhljómsveit Íslands tónlist eftir íslensk tónskáld á borð við Önnu Þorvaldsdóttur, Hildi Guðnadóttur, Daníel Bjarnason, Báru Gísladóttur og Maríu Huld Markan Sigfúsdóttur. 

 

Endurnýja  

Lesa meira

Stórbrotið og spennandi

Ómissandi á Regnbogakort þeirra sem vilja kraftmikla og stórbrotna sinfóníutónleika. Hér má meðal annars finna tónlist efftir Wagner úr óperunni Tristan og Ísold, sinfóníu nr. 8 eftir Mahler og fiðlukonsert nr. 1 eftir Prokofíev. 

 

Endurnýja  
 

Úr öllum áttum

 

Spennandi tónleikar úr öllum áttum sem eiga heima á þínu Regnbogakorti. Klassíkin okkar, Mugison og Sinfó, Harry Potter bíótónleikar, Vínartónleikar Sinfóníunnar, Portrett af Caroline Shaw, Elgar og Eldfuglinn, E.T bíótónleikar, Sköpun heimsins með Barböru Hannigan, Portrett af Magnúsi Jóhanni og Nærmynd af Hildi Guðnadóttur. 

 

Endurnýja