Daníel Bjarnason ráðinn listrænn ráðgjafi Sinfóníuhljómsveitar Íslands
Daníel Bjarnason hefur verið ráðinn í starf listræns ráðgjafa hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands.
Daníel er tónskáld og hljómsveitarstjóri sem hefur starfað á alþjóðlegum vettvangi og unnið með leiðandi hljómsveitum og listafólki víða um heim. Hann hefur um árabil átt náið samstarf við Sinfóníuhljómsveit Íslands, m.a. sem hljómsveitarstjóri, staðarlistamaður, aðalgestastjórnandi og nú sem listamaður í samstarfi.
Daníel lauk námi í tónsmíðum og hljómsveitarstjórn við Tónlistarskólann í Reykjavík árið 2003 og framhaldsnámi í hljómsveitarstjórn við Tónlistarháskólann í Freiburg árið 2007. Hann hefur auk þess lokið burtfararprófi í píanóleik frá Tónlistarskóla FÍH.
Í starfi listræns ráðgjafa mun Daníel vinna að mótun og framkvæmd listrænnar stefnu hljómsveitarinnar í nánu samstarfi við listrænan stjórnanda og framkvæmdateymi. Hann mun áfram gegna hlutverki listamanns í samstarfi.
