Leiðari fagott deildar (Tímabundin staða)
Sinfóníuhljómsveit Íslands auglýsir lausa stöðu leiðara fagott deildar. Tímabundin, full staða tímabilið 19. október 2026 - miðjan desember 2027.
Umsóknarfrestur til 31. ágúst
Umsókmarferli
Fyrsta umferð:
- Ferilskrá (CV)
- Afritum af viðeigandi prófskírteinum og vottorðum
- Myndbandsupptökum samkvæmt leiðbeiningunum hér að neðan
Umsóknir skulu sendar í síðasta lagi 31. ágúst 2026 með tölvupósti á: starf@sinfonia.is
Vinsamlegast hafið "Leiðari Fagott deildar" í efnislínu.
Vegna þess hve ráðningartíminn er stuttur koma einungis til greina umsækjendur sem eru ríkisborgarar Evrópusambandsins (ESB) eða Evrópska efnahagssvæðisins (EES) eða hafa þegar tilskilin leyfi til að starfa á Íslandi.
Seinni umferð: Myndbandsumferð
Umsækjendur skulu senda inn tvær óklipptar myndbandsupptökur.
Myndband 1 – Einleiksverk
Ein samfelld, óklippt upptaka með píanómeðleik af:
Camille Saint-Saëns: Sónata fyrir fagott og píanó, op. 168
Fyrsti kafli
Annar kafli
Píanómeðleikur áskilinn.
Myndband 2 - hljómsveitarpartar
Ein samfelld, óklippt upptaka sem inniheldur eftirfarandi útdrætti í þeirri röð sem þeir eru taldir upp:
- Igor Stravinsky: Le Sacre du printemps – Introduction
- Nikolai Rimsky-Korsakov: Scheherazade – Annar kafli, með kadensu
- Dmitri Shostakovich: Symphony No. 9 – Fjórði og fimmti kafli
- Maurice Ravel: Piano Concerto in G major – Fyrsti og þriðji kafli
- Frédéric Chopin: Piano Concerto No. 1 – Annar kafli
- Wolfgang Amadeus Mozart: Le nozze di Figaro Overture
- Pyotr Ilyich Tchaikovsky: Symphony No. 4 – Annar kafli
Upptökurnar skulu:
vera teknar í einni töku, án klippinga eða samskeytingar innan hverrar upptöku
sýna umsækjanda og hljóðfærið greinilega
án tals, sbr. inngang eða kynningu
vera sendar sem myndbandstenglar eða skrár sem hægt er að hlaða niður
Vinsamlegast sendið tölvupóst á mannauðsstjóra á starf@sinfonia.is ef óskað er eftir eintökum af hljómsveitarpartum.
Um starfið
Um er að ræða fullt, tímabundið starf í fagottdeild Sinfóníuhljómsveitar Íslands.
Laun og starfskjör fara eftir kjarasamningum Félags hljómsveitarleikara Sinfóníuhljómsveitar Íslands og íslenskra stjórnvalda.
Gert er ráð fyrir að umsækjendur hafi háskólamenntun í hljóðfæraleik eða sambærilega faglega reynslu.
