EN

6. október 2015

Yan Pascal Tortelier ráðinn nýr aðalhljómsveitarstjóri

Tekur við stöðunni við upphaf næsta starfsárs, 2016/17

Sinfóníuhljómsveit Íslands sendi í dag frá sér tilkynningu um ráðningu franska hljómsveitarstjórans Yan Pascal Tortelier í stöðu aðalhljómsveitarstjóra Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Tortelier er ráðinn til þriggja ára og tekur við stöðunni í byrjun starfsársins 2016-17 og stjórnar þá upphafstónleikum starfsársins.

Yan Pascal Tortelier er heimsþekktur hljómsveitarstjóri og nýtur mikillar virðingar fyrir störf sín. Tortelier hefur stjórnað mörgum af helstu hljómsveitum heimsbyggðarinnar, þar á meðal Sinfóníhljómsveit Lundúna, Orchestre de Paris, Konunglegu Concertgebouw-hljómsveitinni, Fílharmóníuhljómsveitinni í Sankti Pétursborg, Hljómsveit La Scala-óperunnar í Mílanó, Fílharmóníuhljómsveitinni í Los Angeles og sinfóníuhljómsveitunum í Boston, Chicago og Montréal. Tortelier hefur um langt árabil starfað fyrir Chandos-útgáfuna og hljóðritað fjöldamörg verk, einkum með BBC-fílharmóníunni. Þar má nefna verðlaunadiska með hljómsveitarverkum eftir Ravel, César Franck, Albert Roussel og Henri Dutilleux.

Yan Pascal Tortelier hefur átt farsælt samstarf við Sinfóníuhljómsveit Íslands allt frá árinu 1998 þegar hann stjórnaði tónleikum á Listahátíð í Reykjavík. Hann kom aftur þegar hljómsveitin var flutt í Hörpu 2012 og nú síðast stjórnaði hann hljómsveitinni á tónleikum í mars síðastliðnum við frábærar undirtektir.

Tortelier segir um ráðninguna: 

„Það er mér mikið gleðiefni að taka við stöðu aðalstjórnanda Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Samvinna mín við hljómsveitina hefur gengið einstaklega vel og nýja tónlistarhúsið gerir starfið allt mun ánægjulegra en ella. Ég nýt þess að búa til tónlist með hljómsveit sem tekur svo vel í hugmyndir mínar, og er sannfærður um að næstu þrjú árin verði afar mikilvæg í sögu og þróun sveitarinnar. Við munum í sameiningu þróa hljómsveitina áfram, og það er mér mikið kappsmál að við getum náð til tónlistarunnenda víða um heim og deilt með þeim hinum einstöku hæfileikum og tónlistargáfum sem Sinfóníuhljómsveit Íslands býr yfir.“

Tortelier bætir við: 

„Það er einnig skemmtileg tilviljun að Sinfóníuhljómsveitin hljóðritar reglulega fyrir Chandos, þar sem ég hef starfað með þessu sama forlagi í 25 ár. Ég hlakka til að hljóðrita með þeim nýja hljómdiska og stefni einnig að því að fara með sveitina í tónleikaferðir utan landsteinanna.“

Arna Kristín Einarsdóttir framkvæmdarstjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands segir um ráðninguna:

 „Við erum mjög stolt af því að jafn virtur hljómsveitarstjóri sem hefur unnið með öllum helstu sinfóníuhljómsveitum heims kjósi að vinna með okkur sem aðalhjómsveitastjóri. Sinfóníuhljómsveit Íslands hefur vaxið og dafnað síðan við fluttum í Hörpu. Við trúum því að reynsla Tortelier og einstök tónlistargáfa hans muni ýta enn frekar undir þann vöxt og opni jafnframt dyr út í hinn alþjóðlega tónlistarheim þar sem Tortelier hefur skapað sér sterkt nafn.

Samband Tortelier við hljómsveitina er mjög jákvætt. Um leið og hann krefst mjög mikils af hljóðfæraleikurum gefur hann þeim listrænt frelsi og rými til tónsköpunar. Hljómsveitin hljómar dásamlega undir hans stjórn. Hann nær að hrífa hljómsveitina og áheyrendur með sér.“ 

Tortelier mun koma fram með Sinfóníuhljómsveit Íslands á sjö tónleikum á næsta starfsári og meðal þess sem prýðir efnisskrár hans eru verk eftir Ravel, Bizet, Elgar, Rakhmanínov, Shostakovitsj, Sibelius og Stravinskíj. Íslenskir og erlendir einleikarar koma fram með Tortelier á fyrsta starfsári hans, meðal annars Víkingur Heiðar Ólafsson og rússneski píanistinn Nikolai Lugansky, fiðluleikararnir James Ehnes og Alina Ibragimova, og danski sellósnillingurinn Andreas Brantelid. Sinfóníuhljómsveitin mun kynna alla efnisskrá starfsársins í maí. 

Fréttatilkynningin

Nánar um Yan Pascal Tertelier

Franski hljómsveitarstjórinn Yan Pascal Tortelier er heimsþekktur og nýtur mikillar virðingar fyrir störf sín. Hann kemur úr þekktri franskri tónlistarfjölskyldu, en faðir hans var einn mesti sellóleikari Frakklands á 20. öld. Yan Pascal hóf ungur nám í fiðlu- og píanóleik, vann fjórtán ára gamall til fyrstu verðlauna í fiðlukeppni við Tónlistarháskólann í París og þreytti sama ár frumraun sína sem einleikari með Fílharmóníuhljómsveit Lundúna. 

Að loknu námi í hljómsveitarstjórn starfaði hann sem aðalhljómsveitarstjóri Ulster-hljómsveitarinnar í Belfast frá 1989–1992 og BBC-fílharmóníunnar á árunum 1992–2003. Þá var hann aðalgestastjórnandi Pittsburgh-sinfóníunnar frá 2005–2008 og aðalstjórnandi Sinfóníuhljómsveitarinnar í São Paulo í Brasilíu frá 2009–2011. 

Tortelier hefur stjórnað mörgum af helstu hljómsveitum heimsbyggðarinnar, þar á meðal Sinfóníuhljómsveit Lundúna, Orchestre de Paris, Konunglegu Concertgebouw-hljómsveitinni, Fílharmóníuhljómsveitinni í Sankti Pétursborg, Hljómsveit La Scala-óperunnar í Mílanó, Fílharmóníuhljómsveitinni í Los Angeles og sinfóníuhljómsveitunum í Boston, Chicago og Montréal. Tortelier hefur um langt árabil starfað fyrir Chandosútgáfuna og hljóðritað fjöldamörg verk, einkum með BBC-fílharmóníunni. Þar má nefna verðlaunadiska með hljómsveitarverkum eftir Ravel (þar á meðal eigin hljómsveitarútsetningu á píanótríói Ravels), César Franck, Albert Roussel og Henri Dutilleux.

Um stöðu aðhljómsveitarstjóra

Yan Pascal Tortelier er tíundi aðalhljómsveitarstjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands frá því að sveitin tók til starfa vorið 1950. Fyrsti aðalstjórnandi hljómsveitarinnar var Norðmaðurinn Olav Kielland, sem starfaði hér á landi frá 1951–1955. Á undanförnum árum hafa gegnt stöðunni þeir Petri Sakari, Osmo Vänskä, Rico Saccani, Rumon Gamba og nú síðast Ilan Volkov.

Tveir heimsþekktir stjórnendur gegna heiðursstöðum við Sinfóníuhljómsveit Íslands. Vladimir Ashkenazy er heiðursstjórnandi og Osmo Vänskä er aðalgestastjórnandi.