EN

4. desember 2015

Nýr jóladiskur með Sinfóníunni

Sinfóníuhljómsveit Íslands - Jólalög

Út er kominn nýr hljómdiskur Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Þar leikur hljómsveitin jólatónlist frá ýmsum löndum og skapar sannkallaða hátíðarstemningu undir stjórn Bernharðs Wilkinsonar. Þar má nefna íslenska og ameríska jólaforleiki, Heims um ból, dansa úr Hnotubrjótnum, vals úr Jólatréssvítunni, Litla trommuleikarann og grípandi Sleðaferð Íslandsvinarins Leroys Anderson.

Ásamt hljómsveitinni koma fram söngkonurnar Hulda Björk Garðarsdóttur og Þóra Einarsdóttir, Stúlknakór Reykjavíkur og Bjöllukór Tónlistarskóla Reykjanesbæjar. Hér er að finna sígild jólalög og klassískar jólaperlur, lög sem notið hafa mikilla vinsælda og eiga fastan sess á jólatónleikum hljómsveita víða um veröld. Tónlist sem ætti að koma öllum í sannkallað hátíðarskap.

Hljómdiskurinn Jólalög fæst í öllum betri hljómplötubúðum, bókabúðum Eymundsson, Hagkaup, Epal í Hörpu og víðar.

Myndband

Hér má sjá Sinfóníuhljómsveit Íslands leika Jólaforleik með íslenskum jólalögum í útsetningu Sigurðar Ingva Snorrasonar. Upptakan var gerð samhliða upptökum hljómdisksins í Eldborg í nóvember 2014. 

Á disknum: 

Leroy Anderson:  Jólaforleikur
Georg Friedrich Händel: Syng, barnahjörð, jólalag frá Wales: Skreytum hús með greinum grænum, enskt jólalag: Frá borg er nefnist Betlehem, enskt vorlag frá 14. öld: Bjart er yfir Betlehem, Felix Mendelssohn: Friður, friður frelsarans, Franz Gruber: Heims um ból, James Pierpont: Klukknahljóm, höfundur óþekktur: Frá ljósanna hásal

Katherine K. Davis: Litli trommuleikarinn
Steef van Oosterhout, sneriltromma, Stúlknakór Reykjavíkur
Úts. Haraldur Vignir Sveinbjörnsson

Linda McKechnie & Don Marsh: Hringjum jólabjöllum og  Nú syngjum við um jólin

Leroy AndersonSleðaferðin

Robert Sheldon: Jólaforleikur
Felix Bernard: Hátíð í bæ, Kim Gannon, Walter Kent & Buck Ram: Ég verð heima um jólin, J. Fred Coots: Jólasveinninn kemur í kvöld, Hugh Martin & Ralph Blane: Eigum saman gleðilega hátíð, Edward Pola & George Wyle: Hátíðirnar

Edward Pola & George Wyle: Hátíðirnar 
Þóra Einarsdóttir og Stúlknakór Reykjavíkur
Úts. Hrafnkell Orri Egilsson

Pjotr Tsjajkovskíj: Úr Hnotubrjótnum
- Danse des Mirlitons
- Danse de la Fée-Dragée  

Vladimir Rebikov: Vals úr Jólatréssvítunni

Vince Guaraldi:  Jólastemning
Hulda Björk Garðarsdóttir, Stúlknakór Reykjavíkur
Úts. Hrafnkell Orri Egilsson

Howard Blake: Úr Snjókarlinum
- Við líðum hér um loft
Stúlknakór Reykjavíkur
- Dans snjókarlanna                 

Sigurður Ingvi Snorrason: Íslenskur jólaforleikur
Sigvaldi Kaldalóns: Nóttin var sú ágæt ein, Jórunn Viðar: Það á að gefa börnum brauð, Ingibjörg Þorbergs: Hin fyrstu jól, Sigvaldi Kaldalóns: Aðfangadagskvöld jóla,Jón Sigurðsson: Jólin allsstaðar
Stúlknakór Reykjavíkur

Jórunn Viðar: Það á að gefa börnum brauð
Stúknakór Reykjavíkur
Úts. Sigurður Rúnar Jónsson

Jórunn Viðar: Jól               
Hallfríður Ólafsdóttir, flauta, Elísabet Waage, harpa, Stúlknakór Reykjavíkur                       

Sigvaldi Kaldalóns: Ave María
Þóra Einarsdóttir  
Úts. Hrafnkell Orri Egilsson 

Sigvaldi Kaldalóns: Nóttin var sú ágæt ein.
Hulda Björk. Garðarsdóttir, Stúlknakór Reykjavíkur
Úts. Hrafnkell Orri Egilsson

Franz Gruber: Heims um ból.   
Þóra Einarsdóttir, Stúlknakór Reykjavíkur, Bjöllukór Tónlistarskóla Reykjanesbæjar.
Úts. Sigurður Ingvi Snorrason