Stattu og vertu að steini tilnefnt til YAM-verðlauna
Á hverju ári heiðra YAM-verðlaunin það allra besta í lifandi tónlistarflutningi fyrir börn og ungt fólk um allan heim.
Stattu og vertu að steini einstakt fræðsluverkefni Sinfóníuhljómsveitar Íslands var tilnefnt til verðlaunanna í flokki hljómsveita. Haldnir voru fernir skólatónleikar þar sem elstu börn leikskóla og 1.-4. bekkur í grunnskóla hlustuðu á þjóðsögur og þjóðlög í Eldborg. Verkefnið var unnið í samvinnu við Listasafn Íslands.

JM International stendur fyrir veðlaununum en samtökin hafa það að markmiði að tryggja börnum og ungmennum um heim allan aðgang að vandaðri og áhrifaríkri listupplifun.
Verðlaunaafhending YAM-verðlaunanna fer fram 29. september 2026 í Helsingør, Danmörku samhliða alþjóðlegu tónlistarráðstefnunni YAMsession.
