EN

25. september 2026

Staða leiðara í annarri fiðlu

Sinfóníuhljómsveit Íslands auglýsir eftir umsóknum um stöðu leiðara í annarri fiðlu

Fyrsta umferð hæfnisprófs (forumferð) fer fram með skilum á myndbandsupptöku. Umsóknarfrestur er til og með 28. október 2026 og niðurstöður fyrstu umferðar verða kynntar þátttakendum 3. nóvember 2026.

Síðari umferðir hæfnisprófs fara fram í Hörpu, Reykjavík, 7. desember 2026 og hefjast kl. 9:00.

Umsóknir skulu sendar með tölvupósti til mannauðsstjóra á starf@sinfonia.is og skulu innihalda:
• Ferilskrá
• Afrit af viðeigandi prófskírteinum
• Hlekk á myndbandsupptöku fyrir fyrstu umferð

Í fyrstu umferð (forumferð á myndbandi) skulu umsækjendur leika eftirfarandi:

  1.  Mozart-fiðlukonsert, nr. 3, 4 eða 5, 1. kafli, framsaga og kadensa.
  2. Mozart: Forleikurinn að Töfraflautunni, t. 16-59. 2. fiðla.
  3. Mahler: Sinfónía nr. 9, 2. kafli t. 424-444. 2. fiðla.
  4. Stravínskí: Vorblótið, nr. 71 – 7 t. eftir 78. 2. fiðla.
  5. Strauss: Don Juan, t. 1-14 t. eftir C. 1. fiðla.

Nótur fyrstu umferðar má nálgast hér.

 

Í síðari umferðum sem fram fara í Hörpu, Reykjavík, 7. desember 2026 skulu umsækjendur leika:

Einleiksverk:

Fyrsti kafli með kadensu úr einum af eftirtöldum konsertum:
- Brahms, Tchaikovsky, Sibelius, Beethoven, or Dvorâk.

 

Kammerverk:
Mozart: Strengjakvartett í C-dúr K.465 „Dissonance“ 1. kafli, 1. fiðla.
Nótur má nálgast hér. 

Hljómsveitarpartar:
Upplýsingar um hljómsveitarparta má nálgast hér.

Kröfur til upptöku

• Flutningur skal vera án undirleiks og í hljómsveitarstillingu.
• Myndbandið skal tekið upp í einni samfelldri upptöku, í framangreindri röð og vera óklippt.
• Umsækjandi skal sjást greinilega allan tímann.
• Stutt hlé til að stilla hljóðfæri eða laga búnað eru leyfð, en myndavélin skal vera í gangi allan tímann.
• Myndbandsupptaka í snjallsíma er leyfileg.
• Hljóðgæði skulu vera skýr og góð. Ef ytri hljóðnemi er notaður skal staðsetja hann rétt.
• Upptakan skal vera í láréttri mynd, þannig að bæði hljóðfæraleikari og hljóðfærið sjáist allan tímann.

Leiðbeiningar um innsendingu á myndbandsupptöku

• Hlaðið myndbandinu upp á YouTube sem „óskráðu“ (unlisted) myndbandi.

• Afritið hlekkinn í umsókn.

• Aðrar aðferðir við innsendingu verða ekki teknar gildar.

Um starfið
Um er að ræða 100% starf leiðara annarrar fiðlu Sinfóníuhljómsveitar Íslands en samtals eru þrettán stöðugildi í deildinni. Leiðari er leiðtogi deildar sinnar, hefur umsjón með henni og er í forsvari fyrir hana. Þá situr hann í dómnefndum í samræmi við reglur stjórnar Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Leiðari leikur þær einleiksstrófur sem tilheyra deild hans, nema þær sem sérmerktar eru öðrum parti. Gerð er krafa um háskólamenntun í hljóðfæraleik. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Starfsmannafélags Sinfóníuhljómsveitar Íslands og fjármálaráðherra. Aðilar utan EES-svæðis þurfa að sækja um atvinnuleyfi sem háð er samþykki Félags íslenskra hljómlistarmanna (FÍH) og Útlendingastofnunar.

Um hljómsveitina
Sinfóníuhljómsveit Íslands er þjóðarhljómsveit og var stofnuð árið 1950. Stöður fastráðinna hljóðfæraleikara eru 87. Hljómsveitin hefur um árabil verið í fremstu röð hljómsveita á Norðurlöndum og hefur fengið afbragðs dóma jafnt fyrir hljóðritanir sínar sem og tónleika heima og erlendis. Hljómsveitin heldur um 100 tónleika á hverju starfsári, m.a. áskriftartónleika með heimsþekktum stjórnendum og einleikurum. Við erum stolt af metnaðarfullu fræðslustarfi en árlega sækja þúsundir nemenda á öllum aldri hljómsveitina heim. Þá stendur hljómsveitin einnig fyrir margvíslegum fræðsluverkefnum til að leiða tónlistarnema inn í heim atvinnufólks. Barbara Hannigan er aðalhljómsveitarstjóri og listrænn stjórnandi hljómsveitarinnar. Heimili Sinfóníuhljómsveitar Íslands er Harpa, tónlistar- og ráðstefnuhús.

Nánari upplýsingar er að finna á vefsvæði Sinfóníuhljómsveitar Íslands, www.sinfonia.is, og hjá mannauðsstjóra, starf@sinfonia.is.