EN

Arnheiður syngur Mahler

Áskrift að tónleikaröð eða Regnbogakorti tryggir þér öruggt sæti á besta verðinu með 20% afslætti
Dagsetning Staðsetning Verð
4. feb. 2027 » 19:30 » Fimmtudagur Eldborg | Harpa 3.100 - 11.500 kr.
Miðasala hefst 8. júní
  • Efnisskrá

    Antonín Dvořák Karnival forleikur
    Gustav Mahler Söngvar förusveinsins
    Gustav Mahler Urlicht úr sinfóníu nr. 2
    Johannes Brahms Sinfónía nr. 1

  • Hljómsveitarstjóri

    Tomáš Hanus

  • Einsöngvari

    Arnheiður Eiríksdóttir messósópran

Arnheiður Eiríksdóttir, messósópran, hefur skotist upp á stjörnuhimininn á síðustu árum og hlaut m.a. Alþjóðlegu óperuverðlaunin sem rísandi stjarna ársins 2024. Hér flytur hún okkur nokkur af fegurstu sönglögum Gustavs Mahler: Söngva förusveinsins, sem fjallar um ástir og sorgir förusveinsins og hið áhrifamikla Urlicht, eða Frumljós úr sinfóníu nr. 2, þar sem lýst er þránni eftir lausn frá veraldlegum þjáningum. 

Á síðari hluta tónleikanna stjórnar Tomáš Hanus, aðalgestastjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands, hinni gullfallegu sinfóníu nr. 1 eftir Johannes Brahms, en það tók tónskáldið yfir 20 ár að ljúka við hana. Biðin eftir verkinu margborgaði sig þar sem sinfónían er einn af hornsteinum rómantískra tónbókmennta.